Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.12.2006, Page 93
ORÐEÐAMYND
af vörum. Táknmál hvarf úr skólum og var aðeins talað í leyni. Áhrifa
þessa banns gætti fram á miðja 20. öld.7
Oralisminn eða raddmálsstefnan hafði afdrifarík áhrif á menntun
heyrnarlausra og á sjálfsmynd þeirra margra. Það má nærri geta hversu
takmörkuð sú menntun er sem einskorðast nánast við að kenna fólki að
tala og lesa af vörum. Að sögn heyrnarlauss fólks sem lifði þessa tíma hér
á landi fóru oft heilu kennslustundirnar í að kenna nemendum að segja
stakt orð eða kannski eina setningu. Markmiðin voru því ekki háleit og
afraksturinn eftir því. Þetta gerði að verkum að stór hópur heyrnarlausra,
jafnt hérlendis sem annars staðar, fór að miklu leyti á mis við þá mennt-
un sem heyrandi fólk telur sjálfsagða og nauðsynlega til að komast áfram
í samfélaginu. Þegar grunninn vantar er erfítt að byggja ofan á og það er
ekki fyrr en á allra síðustu árum sem heyrnarlausir sem ólust upp á tím-
um raddmálsstefnunnar fóru að átta sig á gildi menntunar og sækja sér
hana í auknum mæli. Sem bemr fer hafa tímarnir breyst og yngri kyn-
slóðir heyrnarlausra hafa hlotið menntun sem er sambærileg við þá sem
heyrandi jafnaldrar þeirra njóta.
En það er ekki aðeins menntunarskorturinn sem hefur staðið heyrnar-
lausum fyrir þrifum heldur ekki síður þau viðhorf sem hafa mætt þeim í
gegnum tíðina. Sá sem elst upp við þá kúgun og niðurlægingu sem
heyrnarlausir máttu búa við á erfitt með að líta sjálfan sig réttum augum
og sökum þess að ekki mátti nota táknmál höfðu einangrun og sam-
skiptaleysi einnig gífurleg áhrif á sálarlíf þessa hóps. Reyndar má búast
við því að einangrunin sé ennþá talsverð því þó að táknmál sé ekki leng-
ur bannað er kunnátta í því ekki almenn og því eru þau samskipti sem
heyrnarlausir geta átt við heyrandi fólk takmörkuð.
Danski félagsfræðingurinn Jonna Widell ólst upp meðal heyrnarlausra
í fjölskyldu sinni og hún hefur meðal annars skrifað um áhrif raddmáls-
tímans á heyrnarlausa. Hún rekur hvernig stefnan tók smám saman að
setja mark sitt á heyrnarlausa og þá sérstaklega börn sem með skólagöng-
unni tóku að líta á sig sem eftirbáta þeirra sem heyrandi voru. Hugsun-
in „ég get ekki, ég er vonlaus“ varð ríkjandi og hamlaði því að sjálfsmynd
og sjálfstraust þessara barna þróaðist eðlilega.8 Það sama virðist hafa átt
7 Sama rit, bls. 60-63.
8 Jonna Widell, „The Danish Deaf Culture in European and Western Society" í Look-
ing Back: A reader in the history of deaf communities and their sign languages, ritstj. Ren-
ate Fischer og Harlan Lane, International Studies on Sign Language and Comm-
unication of the Deaf; 20. Hamburg: Signum, 1993, bls. 457-478, bls.464.
91