Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.12.2006, Side 181
UM MÁLVÍSINDALEGAR HLIÐAR ÞÝÐINGA
rtkismál - Hvemig A að skrifa í og/eða Jyrir Washington.6 Af þessum þrem-
ur samtengingum kemur aðeins hin síðasta fyrir í einu af samójedísku
mngumálunum.7 Þrátt fyrir þennan mun á tiltækum samtengingum má
greinilega þýða allar þrjár gerðir málboða í alríkismáli bæði yfír á hefð-
bundna íslensku og á þetta samójedíska tungumál. Alríkismál: 1) Jón og
Pétur, 2) Jón eða Pétur, 3) Jón og/eða Pétur koma. Hefðbundin íslenska:
3) Jón og Pétur eða annar kemur. Samójedíska: Jón og/eða Pétur koma
báðir, 2) Jón og/eða Pétur, annar þeirra kemur.
Ef tiltekið tungumál vantar málfræðileg afbrigði er hægt að beita orða-
vali til að þýða þá merkingu sem um er að ræða yfír á það. Tvítölumynd-
ir, eins og gamla rússneska orðmyndin braga, eru þýddar með hjálp tölu-
orða: „Tveir bræður“. Það er erfiðara að vera trúr upprunalega textanum
þegar tungumálið sem við þýðum á býr yfir málfræðilegum leiðum sem
frumtungumálið skortir. Þegar setningin „hún á bræður“ er þýdd á
tungumál sem gerir greinarmun á tvítölu og fleirtölu erum við knúin til
að velja annaðhvort milli tveggja staðhæfínga, „hún á tvo bræður“ eða
„hún á fleiri en tvo bræður“, eða láta áheyrandanum eftir þá ákvörðun og
segja: „Hún á annaðhvort tvo bræður eða fleiri en tvo“. Aftur á móti þeg-
ar þýtt er af tungumáli sem er án málfræðilegrar tölu yfir á íslensku neyð-
ist maður til að velja annan af tveimur möguleikum, „bróðir“ eða „bræð-
ur“, eða gefa viðtakanda málboðsins tvo kosti: „Hún á annaðhvort einn
bróður eða fleiri en einn“.
Eins og Boas benti svo skemmtilega á, ákvarðar málfræðilegt mynstur
tungumáls (frekar en orðaforði þess) þær hliðar reynslunnar sem tiltekið
tungumál hlýtur að tjá: „Við verðum að velja á milli þeirra og aðra verð-
ur að velja.“8 Til að geta þýtt setninguna „ég réði verkamann“ rétt, þarf
Rússi að fá viðbótarupplýsingar. Hann þarf að vita hvort búið er að gera
þetta eða ekki og hvort starfsmaðurinn er karl eða kona, vegna þess að
hann verður að velja milli lokins og ólokins horfs sagnarinnar, nanjal eða
nanimal, og á milli karlkyns- og kvenkynsorðs, rabotnik eða rabotnitsa. Ef
sá sem segir setninguna er spurður hvort starfsmaðurinn er karl eða
kona, gæti sú spurning þótt óþörf eða óviðeigandi, en í rússnesku setn-
6 James R. Masterson and Wendell Prooks Phillips, Federal Prose (Chapel Hill, NC,
1948), bls. 40 o.áfr.
7 Sbr. Knut Bergsland, „Finsk-ugrisk og almen sprákvitenskap“, Norsk Tidsskrift for
Sproguitenskap, XV (1949), bls. 374 o.áfr.
8 Franz Boas, „Language", General Anthropology (Boston, 1938), bls. 132 o.áfr.
í79