Blysið : skólablað Gagnfræðaskóla Austurbæjar - 01.12.1966, Síða 14

Blysið : skólablað Gagnfræðaskóla Austurbæjar - 01.12.1966, Síða 14
IAKVEIKI01 6I6T Eftir læknisskoðun nú í hausþhefur komið í ljós, að bakveiki hrjáir stóran hluta nemenda skólans, jafnt pilta sem stúlkur. Það er al- mennt mál manna, að II-A og II bekkur B beri af í veikindastríði þessu. U.þ.b. 60% nem- enda þessarra bekkja eru undir lækniseftirliti og er varla messuhæft í leikfimi hjá þessum bekkjum, þar eð aðeins tæplega helmingur nem- enda hefur heilsu til að mæta. Já T Slæmt er það. Rúmur helmingur nemenda þessara bekkja er orðinn gigtveikur. Þeir verða góðir í ellinni, þessir nemendur, sem eru svona 14 og 15 ára. Hverju má um kenna. Kannske leti. Einn merkur maður hefur sagt, að hægt verði að hafa hestaheilsu með 8 mínútna æf- ingu á dag alla æfi, ef fólk legði það á sig. Kannski eru það skólahúsgögnin ? Þessir grjóthörðu stólar, sem við erum látin sitja á. Það er stór möguleiki. Ég er alveg viss um, að ef borin yrði upp tillaga á sal um nýja gerð stóla og betri, að hún yrði örugglega samþykkt með öllum höndum á lofti. Hina nýju stóla ætti að vera hægt að láta snúast á öxli, þannig að setan færi í hring og þeir mættu gjarnan vera með örmum og einnig stoppaðir með hæfilega mjúkum fjaðursvampi. A þessi tillaga eink- um við um 3 fremstu borðaraðimar. Þar vill það oft verða svo, að nemendurnir vilja frekar hlusta á manninn fyrir aftan, en þann, sem snýr andlitinu að bekknum og er ad stagla á einhverju^sem enginn skilur. Kannski gætu nýju sjúkrastólarnir bjargað þessu. Þá væri hægt að hafa gömlu stólana til taks á sal á föstudagsmorgnum til þess að fólk yrði ekki eins og bognir naglar við morgunsönginn. En eitt er víst, að bakveikinni verður ekki bjarg- að með blekslettum og pennastrikum. Vilhjálmur Bjarnason II-B - 14 -

x

Blysið : skólablað Gagnfræðaskóla Austurbæjar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Blysið : skólablað Gagnfræðaskóla Austurbæjar
https://timarit.is/publication/1858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.