Heimili og skóli - 01.06.1949, Blaðsíða 7

Heimili og skóli - 01.06.1949, Blaðsíða 7
HEIMILI OG SKÖLI 51 brota. Má telja víst, að þessar þjóðfé- lagsmeinsemdir verði stöðugt ægilegri, sé ekki búizt til skeleggrar varnar og beitt þeim aðgerðum, sem skylt er að beita í hverju menningarþjóðfélagi. Vitað er, að allstór hópur barna hefur leiðst út í hnupl, þjófnað, innbrot, spellvirki, lauslæti og áfengisnautn. Verður sá hópur smám saman stærri og stærri, sem ekki er hægt að bjarga við þær aðstæður, sem nú er við að búa. Er því hætt við, að margir þessara ungl- inga verði annað hvort vandræða- eða afbrotamenn, sé ekki nú þegar hafizt handa um nauðsynlegar ráðstafanir. Þess vegna leggur uppeldismálaþingið til það, er hér fer á eftir: a) Hæli fyrir fávita og geðveik börn séu sett á stofn sem allra fyrst. b) Upptökuheimili fyrir börn og unglinga, sem villzt hafa á glapstigu, sé byggt á hentugum stað í nágrenni Reykjavíkur.. Verður það fyllilega að svara kröfum nútímans. Skal þar fara fram athugun á hverjum einstaklingi, áður en honum er ráðstafað til fram- búðar. c) Reist verði uppeldisheimili sam- kv. 37. gr. barnaverndarlaganna, handa drengjum 8—12 ára gömlum, sem ráðstafa þarf til langdvalar. Heim- ili þetta sé fjarri Reykjavík, eða öðrum stærri bæjum, þar sem land er til bú- reksturs og jarðhiti til gróðurhúsa- reksturs. d) Stofnað sé uppeldisheimili handa 12—16 ára drengjum, sem framið hafa lögbrot, eða eru á annan hátt á glap- stigum, svo og eldri unglingum, skv. 28. gr. barnaverndarlaganna. Sé heim- ilinu valinn staður með tilliti til rækt- unar, búreksturs, sjósóknar og mark- aðsmöguleika. e) Rekið sé uppeldisheimili handa 12—16 ára stúlkum, sem eru á glapstig- um, svo og eldri unglingum, skv. 28. gr. laganna, og séu tilsvarandi starfs- skilyrði höfð í liuga og við heimili drengjanna. f) Menntamálaráðherra skipi nú þegar nefnd sérfróðra manna til þess að gera nánari tillögur um stofnanir þess- ar og framkvæmdir, sem þær snerta. Ennfremur sé þeirri nefnd falið að rannsaka og gera tillögur um, með hverjum hætti unnt verði að koma at- vinnulitlum afbrotaunglingum í fasta, arðbæra vinnu til sjávar eða lands. Uppeldisþingið lítur svo á, að sam- ræma þurfi starfshætti barnaverndar- nefnda í landinu, svo að framkvæmd barnaverndarlaganna verði með svip- uðum hætti um land allt. Þingið bein- ir því eftirfarandi tillögum til Barna- verndarnefndar íslands: I. Reglugerðir um barnavernd verði settar fyrir kaupstaði og kauptún landsins. II. í kaupstöðum og stærri kauptún- um verði öllum unglingum á aldrin- um 12—18 ára gert að skyldu að bera aldursskírteini (vegabréf) til að sýna í kvikmyndahúsum, opinberum skemmtistöðum og annars staðar, þar sem dvalarleyfi er bundið við vissan aldur. III. Látin sé fara fram athugun á því, hvort ekki sé rétt að hafa aðeins eitt aldurstakmark unglinga við banni að kvikmyndum, í staðinn fyrir þrjú, eins og nú er gert. IV. Gerð séu eyðublöð fyrir tilkynn- ingar um ráðstöfun á börnum í um-

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.