Heimili og skóli - 01.06.1949, Qupperneq 8
52
HEIMILI OG SKÓLI
EIRÍKUR SIGURÐSSON'
Heimsókn í barnaheimili
Sumarið 1947, þegar við hjónin
dvöldum í Danmörku, heimsóttum
við nokkur barnaheimili í Kaup-
mannahöfn. Þar á meðal nýtízku dag-
heimili í Utterslev í útjaðri borgar-
innar. Það starfar í fjórum deildum:
Vöggustofa fyrir börn frá 0—2 j/2 árs,
dagheimili fyrir börn 2j4—7 ára, tóm-
stundaheimili fyrir börn á skólaaldri
og deild fyrir vandræðabörn í sérstakri
byggingu. Þetta heimili var nýtt og
snyrtilegt, vel útbúið að leiktækjum
og áhöldum.
En það er annað barnaheimili, sem
ég ætla að gera hér að umtalsefni. Það
er barnaheimilið „Jakob Michelsens
Minde“ í Skodsborg.
Þetta barnaheimili er alls ekki nýtt
og starfar í gömlum húsakynnum. Þó
þótti mér það á ýmsan hátt merkasta
barnaheimilið, er við sáum, og líktist
rnest góðu, fjölmennu fjölskylduheim-
ili. Þetta er uppeldisheimili. sem tekur
við börnunum ungum, og elur þau
upp.
Auðugur kaupmaður gaf borginni
þarna húseignir og jarðnæði, með því
skilyrði, að þar yrði rekið fyrirmyndar
uppeldisheimili fyrir hraust, munað-
arlaus börn. Einkum er svo fyrir mælt,
að taka skuli systkinahópa, svo að syst-
kinin þurfi ekki að skilja.
Barnaheimilið tók til starfa 1921 og
minntist því 25 ára afmælis síns 1946,
og var þá gefið út afmælisrit um starf-
semi heimilisins. Skólastjórahjónin,
Brynhild og M. P. Jensen, hafa veitt
heimilinu forstöðu allan þennan tíma
með hinni rnestu prýði. Hafa þau alið
þarna upp um 300 börn, sem flest hafa
reynzt góðir þjóðfélagsþegnar. Má þó
nærri geta, að ekki er vandalaust að
stjórna svo fjölmennu barnaheimili
með börnum á ýmsum aldri.
Börnin koma oftast á heimilið um
þriggja ára aldur og eru þar fram yfir
fermingu. Þá er drengjunum oftast
komið í eitthvert iðnnám, en stúlkurn-
ar eru þar til 16 ára aldurs, og hjálpa
til við heimilisstörfin, þegar skólaaldri
er lokið. Heimilið er fyrir 73 börn, en
þegar við komum þar, voru þau 76.
Heimilisfólk er um 90. Auk skóla-
stjórahjónanna eru þar 2 vinnumenn
og 9 vinnukonur.
Það einkennir þetta barnaheimili.
dæmi annarrar barnaverndarnefndar í
samræmi við 29. gr. laga um vernd
harna og ungmenna.
Uppeldisþingið leyfir sér að mæla
mjög eindregið gegn því að bæjar-
stjórnir, hver í sínu umdæmi, leyfi at-
vinnurekstur, sem eykur siðferðilegar
hættur og freistingar barna og ungl-
inga. Þingið vill þar til nefna ýmsa
veitingastaði, hinar svonefndu „sjopp-
ur“, sem margir nefna nú barnaknæp-
ur, því að veitingastaðir þessir eru nær
eingöngu sóttir af börnum og ungling-
um. Benda má á, að vörur, sem þarna
eru á boðstólunum, eru dýrar og óholl-
ar til neyzlu.