Heimili og skóli - 01.06.1949, Blaðsíða 11

Heimili og skóli - 01.06.1949, Blaðsíða 11
HEIMILI OG SKÓLI 55 OLAFUR GUNNARSSON frá Vik i Lóni: Vandamdl gelgjuskeiösins Allir, sem við uppeldi fást, vita, að gelgjuskeiðið er örðugur áfangi á þrsokabraut unglingsins, af hverju örðugleikarnir stafa er ekki eins al- kunna. Við vitum öll, að á aldrinum 11—18 ára verða unglingarnir kynþroska, sem kallað er, telpan hefur á klæðum í fyrsta skipti, og sáðlát piltsins hefst. Við vitunr einnig, að þessi breyting, sem lífeðlisfræðilega skýtur loku fyrir bernskuna og gerir úr barninu kyn- þroska ungling, sem aukið getur kyn sitt, veldur meiri eða minni truflun- um á sálarlífinu. Þessi truflun lýsir sér með ýmsu móti, en oftast í auknu hrif- næmi gagnvart ytri áhrifum, og einatt í önuglyndi og uppreisnaranda. Margir uppalendur, bæði foreldrar og kennarar, telja, að líkamlegu breyt- ingunum einum sé um að kenna og sál- rænu truflanirnar séu svo sjálfsögð af- leiðing þeirra, að þar verði engu um þokað. Afleiðing þessarar ályktunar er sú, að uppalendum dettur tæpast í hug, að framkoma þeirra gagnvart ungling- unum skipti miklu máli; unglingarnir séu eðlilega önugir á þessu tímabili, við því sé ekkert að gera, og þar með búið. Við skulum nú athuga þetta mál of- urlítið nánar. Ef röskun á sálarlífi unglinganna er eingöngu líkamlegum orsökum að kenna, hlýtur hún að vera eins eða áþekk hjá hverri einustu þjóð. Rannsóknir hafa leitt í Ijós, að þessu er ekki þann veg farið. Amerískir mannfræðingar hafa komizt að raun um, að á Suðurhafseyjum, þar sem þjóðflokkarnir lifa óháðir hinni svo- nefndu menningu, er ekki um neina gelgjuskeiðsörðugleika að ræða. Líf þessa fólks virðist vera einn órofinn hamingjuheimur frá vöggu til grafar, og einu áhyggjur þess eru, ef það ótt- ast, að það sé ekki nágrönnunum að skapi. Eftir því, sem bezt verður séð, eru gelgjuskeiðsörðugleikar mun meiri í menningarlöndum Evrópu og Amer- íku nú en þeir voru fyrir hundrað ár- uin síðan. Þessi dæmi ættu að nægja til þess að sanna, að líkamlegum breytingum ein- um er ekki um að kenna, er ókyrrð gelgjuskeiðsins grípur unglingana heljartökum. En hvað veldur þá sálrænu örðug- leikunum? Þeim valda margar orsakir. Kynþroska ná flestir unglingar sam- tímis því, sem þeir eru að verða fnll- orðnir frá félagslegu sjónarmiði. Þeir geta ekki lengur verið heima í hreiðr- inu hjá pabba og mömmu, án þess að þurfa neitt fyrir lífinu að hafa. Þeir verða nú að svipast um, annað hvort eftir vinnu, sem geri þá fjárhagslega óháða, eða þeir verða að velja sér námsferil í því augnamiði að búa sig undir ævistarf. Oft og tíðum verða unglingarnir á þessum aldri að yfirgefa heimili sín og leita sér atvinnu hjá

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.