Heimili og skóli - 01.06.1949, Blaðsíða 19

Heimili og skóli - 01.06.1949, Blaðsíða 19
HEIMILI OG SKÓLI 63 SNORRI SIGFÚSSON: HINN VÍGÐI ÞÁTTUR o Þann 31. ágúst þ. á. verður Snorri Sig- fússon námsstjóri 65 ára. Snorri Sigfússon er svo þjóðkunnur fyrir skólastarf sitt, er- indi og áhuga á uppeldis- og skólamálum, að óþarfi er að kynna hann fyrir lesendum Heimilis og skóla, enda hefur það verið gert áður. En þó að Snorri hafi orðið fyrir ýmsum þungum áföllum hin síðari ár, hef- ur það ekki beygt hann. Enn býr hann yfir sama brennandi áhuganum á uppeldis- og skólamálum þessarar þjóðar og er alltaf reiðubúinn til að byrja á einhverju nýju og betra. Heimili og skóli árnar honum allra heilla á þessum tímamótum ævinnar, og vonar, að honum megi enn auðnast að starfa lengi að áhugamálum sínum. Grein sú, sem hér fer á eftir, er útvarps- erindi, sem hann flutti í dómkirkjunni í Reykjavík fyrir fáum árum, og er það birt hér samkvæmt ósk nokkurra hlustenda. Ritstj. Ein af þeim perlum, er skáldjöfur- inn Einar Benediktsson gaf þjóð sinni um s.l. aldamót, voru þessar ljóðlínur: Sú þjóð, sem í gæfu og gengi vill búa, á guð sinn og land sitt skal trúa. Þegar Einar Benediktsson formbatt þessa hugsun með þessum ógleyman- legu og oft tilvitnuðu Ijóðlínum, var hann ungur og enginn kreddukarl. Það varð hann nú raunar aldrei. Hann var sem kunnugt er hinn mikli heims- maður í aðra röndina og dáandi jarð- neskra gæða og lystisemda, en djúp- skyggn og dulskyggn andi í hina, er hvessti sjónir á hin miklu lífsins verð- mæti og sópaði burtu hisminu, þegar svo bar undir, svo að kjarni málsins blasti við allra augum, ldár og hreinn. Hið mikla skáld hafði drukkið í sig veraldarvizku 19. aldarinnar, kafað til botns í kenningum hennar og glysi, setið við ríkuleg borð aldarandans í hásölum evrópiskrar menningar og notið þess þar, sem notið varð. „En köld var hyggjan sem klaki og böl und- ir hverju þaki“. Og svo kemur hann úr veizlunni og kveður sér hljóðs: „Sjálft hugvitið, þekkingin, hjaðnar sem blekking sé hjartað ei með, sem • undir slær. Sú þjóð, sem í gæfu og gengi vill búa á guð sinn og land sitt skal trúa.“ Þetta er boðskapur hins vitra manns til þjóðarinnar á vegamótum. Þar er ekkert liik né hálfvelgja. Þetta er hin eina farsæla leið. Og skyldi honum hafa missýnst? Er ekki þjóð vor enn á vegamótum, reikul í ráði og völt á fót-

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.