Heimili og skóli - 01.06.1949, Síða 25

Heimili og skóli - 01.06.1949, Síða 25
HEIMILI OG SKÓLI 69 Drengurinn þinn í vetur kom út bók með þessu nafni. Hún er eftir sænskan prest og skáta- leiðtoga, Frithiof Dahlby, en Frey- steinn Gunnarsson hefur þýtt hana. Bók þessi er skrifuð einkum fyrir foreldra og aðra þá, sem þurfa að bera ábyrgð á drengjum. Hún lýsir sálarlífi þeirra á gelgjuskeiðinu, — þegar þeir eru að verða að mönnum. Bókin er skrifuð af næmum skiln- ingi og hlýjum huga til drengjanna á þessu erfiða tímabili ævinnar. „Heimili og skóli“ vill mæla sem bezt með þessari litlu bók. Og í stað þess að ræða nánar um hana, birta hér þrjá stutta kafla úr henni. Drengurinn og pabbinn. N ú skulum við virða drenginn nán- ar fyrir okkur. Þegar hann er lítill, svona fjögra eða fimm ára, fínnst hon- um afar mikið til pabba síns koma, því að pabbi getur allt. Úr trékubbunum getur hann reist stóran turn, sem ekki hrynur jafnharðan, og við hundinn með hringvírsrófuna getur hann gert þær hundakúnstir, að hægt er að hlæja sig máttlausan. Þegar drengurinn er kominn á ylf- ingaaldur, sem við skátar köllum, kringum átta eða níu ára, finnst hon- um enn til um pabba sinn, af því að hann getur allt og veit allt. Hann get- ur búið til undursamleg leikföng og svarað einkennilegustu spurningum, hvort sem spurt er hvernig eða af hverju. Hann getur t. d. skýrt, hvernig á því stendur, að ekki eru nema tvö hjól á hjólhesti, en fjögur á bíl. Þegar drengurinn er kominn á skáta- aldur, segir hann sem svo og dregur seiminn: „Ja-á, hann pabbi veit nú ekki allt og getur ekki allt. en hann Kalli og Kiddi og hann Siggi og hann Sveinn, þeir geta allt, og allt, sem þeir segja, er rétt og áreiðanlegt." Fimmtán ára drengur fullyrðir hik- laust: „Pabbi getur ekkert og veit ekk- ert. Hann er gamaldags, alveg á eftir tímanum og fylgist ekki með í neinu. Hann er orðinn kalkaður, hann hefur það sér til afsökunar. En bíðið þið bara, þangað til ég ræð yfir mér sjálf- ur, get séð fyrir mér og siglt minn sjó. Þá skal kveða við annan tón. Þá fer ég og kem, þegar mér sýnist, og hátta, þeg- ar mér sýnist. Þá skal ég aldrei éta graut.“ Svona hefur það víst alltaf verið. Og það má mikið vera, ef Adam sálugi, forfaðir okkar allra, hefur ekki ein- hvern tíma heyrt einhvern af drengj- unum sínum segja: „Skelfing ertu heimskur, pabbi.“ En þrátt fyrir þetta, getur drengur- inn verið hliðhollur föður sínum lit á við. „Ég vil ekki heyra, að illa sé talað um pabba minn. Það má enginn gera nema ég sjálfur." Stundum kemur það fyrir á vissu aldursskeiði, að drengur fyrirverður sig fyrir föður sinn eða móður. Hann getur þá miklazt af því, ef félagar hans eru viðstaddir, að segja foreldrum sín-

x

Heimili og skóli

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.