Heimili og skóli - 01.06.1949, Side 28

Heimili og skóli - 01.06.1949, Side 28
72 HEIMILI OG SKÓLI dunda við hann. Drengurinn gekk nokkra hringi kringum bílinn og horfði á. Loks stanzaði hann frammi fyrir föður sínum og sagði: ,,Af hverju gerirðu þetta sjálfur, pabbi? Þú hefur alltaf svo lítinn tíma. Getur ekki garð- maðurinn hreinsað bílinn fyrir þig?“ Faðirinn svaraði: „Nei, drengur minn, það dugar ekki. Bíllinn er dýr- mcet eign, skilurðu, og ég verð að gefa mér tíma til að hugsa um hann og fara vel með hann. Garðmaðurinn gæti rispað hann og skemmt. Ég trúi hon- um ekki fyrir því.“ :Drengurinn kinkaði þegjandi kolli og hélt áfram göngu sinni kringum bíl- inn. Eftir stundarkorn stanzaði hann aftur hjá pabba sínum og sagði: „Heyrðu pabbi!“ „Já, hvað viltu nú?“ „Er þá engin eign í mér?“ Faðirinn hrökk við. „Af hverju spyrðu að því?" „Þú mátt aldrei vera að því að hugsa um mig.“ Bílhreinsuninni var óvenjulega fljótt lokið í þetta sinn. Og skömmu seinna mátti sjá föður og son leika sér saman og kútveltast á gólfábreiðunni í beztu stofunni. Bókin, sem hann „mátti til að lesa“, lá ósnert á skrif- borðinu og sömuleiðis dagblaðið og vikuritið. En hvernig er það annars? A morgn- ana ertu að flýta þér. Á kvöldin ertu þreyttur. Á rúmhelgum dögum ertu alltaf í önnum og á sunnudögum „lendir allt í öðru“. Hefurðu þá aldrei tíma til að sinna drengnum þínum? Ef við eigum börn, erum við blátt áfram skyldugir til að hafa einhvern tíma afgangs handa þeim. Og ekki að- HEIMILI OG SKÓLI TÍMARIT UM UPPELDISMÁL Útgefandi: Kennarafélag Eyjafjarðar. > Ritið kemur út í 6 heftum á ári, minnst < 24 síður hvert hefti, og kostar árgangur- j inn kr. 10.00, er greiðist fyrir 1. júní. Útgáfustjórn: ? Snorri Sigfússon, námsstjóri, Kristján Sigurðsson, kennari, Hannes J. Magnússon, skólastjóri. t Afgreiðslu- og innheimtumaður: j Árni Björnsson, kennari, Skólastíg 11. > Akureyri. Ritstjóri: j Hannes J. Magnússon, Páls Briems- j götu 20, Akureyri. Sími 174. j Prentverk Odds Björnssonar h. f. < eins það. Eitt hið bezta, sem lífið hefur að bjóða, er það að sinna drengnum þínum, verða trúnaðarvinur hans og félagi og hjálpa honum. Þú hefur ekki efni á að neita þér um það. Brátt er hann upp kominn og floginn burt eins og fugl úr hreiðri, og þá situr þú eftir, einmana. Stundum kvartar þú undan því, að drengurinn þinn tolli aldrei heima. Gerirðu nokkuð til þess, að hann uni sér þar? Ertu heima sjálfur, svo að þú getir sinnt honum? Eða er heimili þitt bara benzínstöð á daginn og bílstæði á næturnar? VEGNA FJARVERU ritstjórans kemur þetta hefti seinna út en vera átti, en þrátt fyrir það mun reynt að láta öll heftin koina út á árinu. Samt eru kaupendur beðnir að afsaka þennan drátt. Ritstj.

x

Heimili og skóli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.