Heimili og skóli - 01.02.1952, Page 10
4
HEIMILI OG SKOLI
ana, sem lítils var vænzt af í uppvexti,
og gáttir allar opnast þeim svo, að þeir
sjá sínar óskastjörnur. En þessar gátt-
ir, sem þarf að opna, eru leiðir til þess,
að þeir geti þroskað hæfileika sína og
fundið til hvers þeir duga. Óskastjörn-
urnar eru hneigð hvers manns til
þeirra starfa, sem hann er bezt fallinn
tik.En þar vantar mikið á, að vér get-
um enn sem komið er opnað þær
gáttir, sem þarf, og þar með gert skyldu
vora gagnvart unglingunum. En sál-
fræðingar þurfa að hjálpa skólunum
í þessu efni. „Suma skorti verjur og
vopn að hæfi,“ segir skáldið. Það eru
þessar verjur og þessi vopn, sem skól-
unum ber skylda til að reyna að
afla. Þetta er eitt af stærstu hlutverk-
um skólanna í framtíð.
Öll börn eru fædd til þess að öðlast
hið sama aðalsmerki: að verða nýtir
menn. Og þau eru öllu fædd til þess
réttar að rnega njóta lífsins. Þetta er
það, sem réttlætir hina almennu skóla-
skyldu. Skólar eru gallaðir og skólar
eru misjafnir, en þetta dregur ekki úr
þörf skólanná.
Það er nauðsynlegt, að þjóðin eigi
álitlegan hóp af stúdentum og lang-
skólamönnum, en ekki er það síður
þjóðinni nauðsyn, að allur almenning-
ur sé vel menntur. Vér lifum í lýð-
ræðisþjóðfélagi. Lýðræðið þarfnast og
krefst almennrar menntunar. Lýðræði
og góð alþýðumenntun eru fylgifiska'r.
En menntunin er margþætt, en hún
er fyrst og fremst aflgjafi vaxtarþarf-
arinnar. Skólarnir eru í senn fræðslu-
stofnanir og uppeldisstofnanir. Þetta
tvennt, fræðsla og uppeldi, þarf að
fylgjast að.
Ég vil enn fara nokkrum orðum
um þá skoðun, að aðeins námsgáfuð
börn eigi að sækja skóla, að minnsta
kosti framhaldsskóla. Öll börn, sem
hafa þá vitsmuni að hafa lært að tala,
geta lært ótal margt fleira, þótt þeim
gangi það misjafnlega. En það er
miklu meiri vandi að kenna tornæm-
um börnum en námsgáfuðum. Það
má segja að það sé lítill vandi og létt
verk að kenna „gáfuðum" börnum,
en að kenna tornæmum börnum er
mikill vandi og oft erfitt verk. Skól-
um hættir við að flaska á því að láta
tornæmu börnin fást við jafnþung
verkefni og námsgáfuðu börnin. En
ef vel á að fara, þá verða viðfangsefn-
in að vera sniðin eftir getumöguleika
nemendanna. En afsökun skólanna á
mistökum í þessu eíni er vitanlega sú,
að ekki er hægt að hafa nógu nákvæma
flokkun á börnunum í deildir. Og
þetta er rétt. En þó tekst kennurum
misjafnlega í þessum efnum sem öðr-
um, bæði hvað snertir að vekja áhuga
nemendanna og láta hin tornæmu
börn ekki algerlega heftast úr lest-
inni.
I þessum skóla skal aldrei verða
nein Ása né Signý,. sem skemmdar
verða á iðjuleysi og dekri, og enn síð-
ur skal verða hér nein Helga, sem
verði höfð útundan, því að ég vona,
að þessi skóli brjóti aldrei svo sitt sið-
lega takmark, að hann nokkru sinni
geri nokkurt barna sinna að olnboga-
barni. •
Eg býð ykkur öll, eldri og yngri
nemendur, velkomin í skólann og
vænti þess, að hann verði sem annað
heimili ykkar, vermireitur æsku ykk-
ar, ykkur helgur griðastaður.