Heimili og skóli - 01.02.1952, Blaðsíða 13

Heimili og skóli - 01.02.1952, Blaðsíða 13
HEIMILI OG SKÓLI 7 Frú Ingibjörg Eiríksdóttir kennslukona sextug Þann 23. febrúar varð frú Ingibjörg Guðrún Eiríksdóttir, kennslukona við Barnaskóla Akureyrar, sextug. Ingi- björg er fædd 23. febrúar árið 1892 að Efri-Þverá í Vesturhópi. Foreldrar liennar voru Ingunn Gunnlaugsdóttir frá Efra-Núpi í Miðfirði og Eiríkur Jónsson frá Stóru-Giljá í Þingi. Sjö ára gömul fluttist liún með foreldrum sínum að Sveðjustöðum í Miðfirði og ólst þar síðan upp við lítil efni, en mikið ástríki, eftir því sem Ingibjörg liefur sagt mér. Systkinin voru alls 8 og er því ekki að furða, þótt stundum væri þröngt í búi. Lítið fengu börn að læra á þeim árum, því að þá voru fræðslulögin ekki komin á, og ekki var annars krafizt undir fermingu en að kunna kverið sitt. Um tvítugsaldur stundaði hún nám í kvennaskólanum á Blönduósi, en settist síðan í Kennaraskólann og lauk þaðan prófi vorið 1917. Næstu 2 ár var hún við farkennslu í Fremri-Torfustaðahreppi í Miðfirði. Þá var hún kennari í Bolungavík árin 1920—22. Farkennari í Fljótsdal árin 1922—24. Einn vetur stundaði hún farkennslu í Staðarhreppi í Hrúta- firði. En veturinn 1925—26 hafði hún smábarnaskóla í Reykjavík. En eftir það sigldi hún til Noregs og var þar við nám í tvö ár. Fyrra árið við kenn- araháskólann í Þrándheimi, en síðara árið við, húsmæðrakennaraskólann í Stabekk. Haustið 1928 fékk hún kenn- arastöðu við Barnaskóla Ak. og hefur starfað þar síðan, aðallega sem mat- reiðslukennslukona, en hefur þó auk þess gegnt öðrum kennslustörfum. Arið 1939 fór Ingibjörg aftur utan og var þá á ýmsum námskeiðum í hús- mæðraskólum og víðar, m. a. við Silj- anskólann í Dölum í Svíþjóð. Auk þess hefur hún oft verið á kenn- aranámskeiðum, sem íslenzkir kennar- ar hafa efnt til. Árið 1932 gekk Ingi- björg að eiga Steingrím Aðalsteinsson, síðar alþingismann. Ingibjörg hefur tekið mikinn þátt í félagsmálum, einkum félagsmálum kvenna. í kvenfélaginu Hlíf á Akur- eyri hefur hún verið síðan 1928. Þá

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.