Heimili og skóli - 01.02.1952, Page 18

Heimili og skóli - 01.02.1952, Page 18
12 HEIMILI OG SKÓLI SNORRI SIGFÚSSON: Skólar og heimili Því er ekki að neita, að oft koma fyrir margs konar erfiðleikar í sambúð heimilis og skóla, sem valda áhyggjum og andstreymi. Getur þetta stafað af mörgu, og lagast venjulega ekki fyrr en kennari og foreldri tala saman. Fer þá langoftast svo, að allt jafnast, ef sæmilegur skilningur beggja aðila er fyrir hendi, og vilji til að leysa vand- ann . Kemur þá oftast upp tir kafinu, að til misskilnings eða áreksturs hefði ekki þurft að koma, ef viðkynningin hefði verið meiri og þekkingin gleggri á öllum aðstæðum. Því hefur þess vegna verið haldið fram hér, að sem nánust samvinna þessara aðila um uppeldismálin væri brýn nauðsyn. En svo er um þessa samvinnu heim- ila og skóla og nauðsyn hennar, eins og margt annað, að þar gætir oft mik- ils misskilnings um eðli hennar og framkvæmd. Ef heimili t. d. fær ekki framgengt öllu, sem það óskar barni sínu í skólanum, þá finnst því sam- starfið harla einkennilegt og til lítils nýtt. Þetta kemur oft einna gleggst í ljós þegar börnunum er skipt í bekki og deildir bekkja. Þá vilja sumir for- eldrar fá að ráða þar miklu um, og verður stundum úr þessu óánægja í svip. Um skiptingu í bekki fer að mestu eftir aldri, svo að um það er oftast lítið hægt að deila, því að aðeins afburða greind og hraust börn eiga að korna til álita um að fara fram úr beztu deild síns árgangs, og flest börn hafa illt af því, þegar allt kemur til alls. En það er aftur á móti deildaskipt- ingin, sem oft veldur misskilningi og óánægju. Það er vandaverk að skipta i deildir bekkjanna svo að vel sé. Þar kemur margt til greina. Það, sem á öllu veltur, er að hver deild sé sem jöfnust að þroska og getu. Þá kernur samanburðurinn til greina. Og þar standa kennararnir ólíkt betur að vígi en heimilin. Þeir þekkja öll börnin, skrifa langt mál um hinn félagslega undirbúning. Hvernig er barnið t. d. undir }?að búið að samlagast fjöldan- um í skólanum og beygja sig undir reglur hans og aga? Allur þorri barna á auðvelt með þetta, af því að þau hafa verið vanin á að hlýða reglum heimilisins, boðum þess og lögum, en til eru þau börn, sem eiga erfitt með þetta, það eru þau börn, sem lotið hafa litlum aga heima, börn, sem alin hafa verið upp í of miklu meðlæti, börn, sem eru vön við að stjórna sjálf heima fyrir, en sem betur fer eru þessi börn fá, og þau læra einnig smátt og smátt að samlagast heildinni, en það tekur þau lengri tíma og kostar oft einhverja árekstra. í næstu þáttum mun svo vikið laus- lega að sjálfu skólanáminu.

x

Heimili og skóli

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.