Heimili og skóli - 01.02.1952, Side 19

Heimili og skóli - 01.02.1952, Side 19
HEIMILI OG SKÓLI 13 en hvert heimili aðeins sitt eða sín, og skortir því samanburðinn við öll hin börnin í hópnum. Auk þess villir svo oft sýn í þessum efnum hégóm- legur metnaður og oftrú á eigið ágæti, og er hvort tveggja mannlegt, en ekki alltaf heppilegt. Náttúrlega getur kennurunum yfir- sézt með skiptinguna í svip, en aldrei til lengdar, því að samanburðurinn er stöðugur, bæði í kennslu og prófum, enda er þessi skipting stöðugt endur- skoðuð, og reynt að jafna til eftir föngum, því að það er og verður jafn- an nauðsynja og áhugamál kennarans, að hinn stóri hópur, e. t. v. 30—36 börn, sem hann á að annast og kenna, sé sem allra jafnastur að þroska og getu, því að annars er allur árangur meir en vafasamur. Þegar barn kemur fyrst í skóla 7 ára gamalt, verður fyrst og fremst að rannsaka lestrarleikni jjess, og skipta því síðan í hóp þeirra, sem líkt er ástatt um í þeirri grein, og varla líta á annað. Lesturinn verður að vera mælikvarðinn fyrstu árin. En þegar fram í sækir, breytist þetta. Kemur þá smátt og smátt í ljós hinn mikli mun- ur, sem á börnum er og verður, og veldur því, að þau eiga ekki saman, er námið þyngist. Sum koma sæmilega læs í skólann og verða því hópuð sam- an. Önnur illa eða ekki læs og verða í hóp sér. En eftir einn vetnr eða tvo eru þau ntáske komin jalnt þeim beztu í bezta hópnum, og mega því ekki vera með í seinagangi félaga sinna. Þá kann það og að koma í ljós, að þau börn, sem allmikla leikni höfðu í lestri, er þau komu í skólann, voru það meir af alúð heimilis og um- ltyggju en af greind, og eiga því ekki lengur samleið með fyrri félögum sín- nm. Þan dragast þá aftur úr. Þess vegna er það ómótmælanleg staðreynd og kemur þráfaldlega fyrir, að jafnvel þótt barn hafi að réttu lagi átt heima í ákveðinni deild fyrstu 2—3 árin, get- ur það ekki fylgt Jseirri deild upp úr skólanum, nema sér til tjóns. Þess vegna er oft nauðsynlegt að breyta allmiklu í deildunum, þegar lokið er 3ja bekk. Og þótt þetta sé vanalega lítið umrót, og ekki meira en þörf krefur, þá er þó nauðsynlegt, að foreldrar skilji orsakirnar. Og það er fyrst og fremst nauðsynlegt vegna þess, að ef um sársauka er að ræða hjá barn- inu, er hann fyrr græddur, ef heimilið og skólinn skilja þetta bæði eins og eru sammála. Hitt getur orðið óbæt- anlegt tjón barni, ef það hyggur sig beitt ranglæti og fær foreldrana til að fallast á það með sér. Af þessum meginrökum, sem nefnd hafa verið, og miklu fleiri eru til, má það ljóst vera, að skólinn verður að ráða skiptingu barnanna í deildir. Enginn annar aðili einn getur það, svo að vel fari. Þá er annar þáttur þessara mála, þar sem oft reynir á sambandið og sam- starfið milli heimila og skóla, og er þó miklu viðráðanlegra en hitt. En það er með sjálft námið í skólanum, eða eitthvað meira eða minna af því. Sumir foreldrar kvarta stundum yfir jrví, að börn þeirra hafi of lítið að gera, þeim sé of lítið sett fyrir að læra, þau komist ekkert áfram og kunni ekkert o. s. frv. Aðrir telja of hart farið yfir, of mikið sett fyrir, börnin hafi aldrei

x

Heimili og skóli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.