Heimili og skóli - 01.02.1952, Qupperneq 26

Heimili og skóli - 01.02.1952, Qupperneq 26
20 HEIMILI OG SKÓLI 20—30 króna ársgjöld, og eitt félag — fámennt félag í Álftafirði í Suður- Múlasýslu — hefur 50 kr. árstillag á einstakling.“ „Bókaeign félaganna er þá auðvitað misjöfn?“ „Já, að því er varðar bókakost lestr- arfélaganna er Suður-Þingeyjarsýsla efst á blaði. Þar er aðeins eitt lestrar- félag, sem hefur undir 1000 bindi, en mörg talsvert eða hátt á annað þris- und, og tvö á þriðja þúsund. Annað þeirra — Lestrarfélag Mývetninga — á nær 2900 bindi. Annað í þessari röð er Lestrarfélag Dalvíkinga, Eyjafirði, sem á yfir 2470 bindi, og þriðja Lestr- arfélag Selstrendinga, Strandasýslu, sem á um 2400 bindi. Alls eru 7 lestr- arfélög, sem eiga yfir 2000 bindi. Fjöl- mörg lestrarfélög eiga ekki nema 300 —600 bindi. — Oft eiga afskekkt lestr- arfélög myndarleg söfn, t. d. Grímsey- ingar um 1700 bindi. Að sjálfsögðu ber að hafa í huga, að stundum áskotn- ast einstöku félögum bókagjafir, en bókaeign gefur jafnan mikilvæga bendingu um lestraráhugann — sem og eykst oft samfara aukinni bóka- eign.“ „Já, og svo er það val bókanna — ekki mun minna um það vert.“ „Það er rétt. Stjórnir lestrarfélag- anna ráða vali bókanna, en senda sem fyrr var getið, nákvæma skýrslu um starfsemina, m. a. um bókakaup, hvaða bækur eru keyptar o. s. frv. Yf- irleitt virðist val bókanna sæmilegt og oft gott. Frumsamdar, íslenzkar bækur eru vfirleitt látnar sitja í fyrirúmi.“ „Hver var úthlutunarupphæðin til lestrarfélaganna árið sem leið?“ „Rúmlega 149 þús. krónur.“ „Eftir því má áætla, að varið hafi verið til bókakaupa lestrarfélaganna um 300 þús. króna árið sem leið.“ „Telja menn þennan stuðning mik- ils virði?“ „Vissulega. Lestrarfélögunum er með fjárframlögum úr styrktarsjóðn- um veittur mikilvægur stuðningur. Enginn vafi er á því, að mikill fjöldi h'tt efnaðs fólks á þess kost vegna starf- semi lestrarfélaganna, að lesa margar góðar bækur, sem menn ella myndu aldrei fara höndum um, og við aukinn lestur góðbóka mun hollur lestrar- áhugi aukast. — Að lokum vil ég vekja athygli á, að aukastyrkurinn, sem við vikum að, hefur þau áhrif, að félög, sem starfa vel, eiga meiri stuðning vís- an en önnur.“ Bækur og rit Riddararnir sjö, eftir Kára Tryggva- son, kennara í Víðikeri. Bókaútgáfan Norðri gaf út. Fyrir nokkrum árum voru Þingeyingar stórvirkir rithöfund- ar. Nú er Kári í Víðikeri að verða einn mikilvirkasti rithöfundur Þingeyinga og leggur gjörva hönd á margt. Heim- ili og skóla hafa borizt tvær bækur eft- ir Kára, sem komu út fyrir jólin. Ridd- arnir sjö er önnur þeirra. Þetta er skemmtileg drengjabók, full af sak- lausum ævintýrum og töfrum ís- lenzkra öræfa. Það sýnist í fljótu bragði tæplega hægt að skrifa heila bók um einar göngur, en það er þó að minnsta kosti leikur fyrir Kára í Víði- keri, sem alinn er upp á landamærum hinna byggðu sveita og undraheima

x

Heimili og skóli

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.