Heimili og skóli - 01.12.1954, Page 9

Heimili og skóli - 01.12.1954, Page 9
HEIMILI OG SKÓLI 117 mál, sem reynist svo við hans hæfi, að duga megi honum til nokkurrar ham- ingju? Þar til er e. t. v. ekki örugg hin vísindalega greindar-greining, þó að hún geti auðveldað okkur glímuna við ákveðin verkefni í skólanum. Max Glanzelius lítur svo á, að fyrsta skylda kennarans sé að haga þannig skólalífinu og störfunum, að þau vinni markvisst að því, að efla einstaklinginn í leit lians að viðfangsefnum við sitt hæfi, en glæði jafnframt skilning hans á verðmæti samstarfsins og samábyrgð- arinnar á meðferð þeirra verðmæta, sem lífið fær okkur upp í hendurnar, andlegum og efnislegum auðæfum, er svo auðveldlega geta reynzt okkur hefndargjafir, ef við misskiljum gildi þeirra og reynumst þeirra óverðug. Námsskrár og skólareglur, hvers kon- ar fyrirmæli og bókstaflegar reglur verða að víkja fyrir þessu eina nauð- synlega, sem er efling og þroskun ein- staklingsins til persónulegs sjálfstæðis og sameiginlegrar ábyrgðar. Annað mál er það, hvort allir kenn- arar eru færir um að halda þannig á málunum, án þess þó að sniðganga al- menn fyrirmæli um námsefni fyrir vissa aldursflokka og brjóta í bág við gildandi skólareglur. Þá er og fullvíst, að ekki er nema á fárra færi að koma stjórn sinni þannig fyrir, að börnun- um finnist allt frjálst og þægilegt, en fastatökin séu þó ótvíræð og örugg, hvenær sem óhjákvæmilegt reynist að grípa til þeirra. Ég segi þetta ekki til að niðra stéttarbræðrum mínum yfir- leitt, en ég þekki bezt af sjálfum mér, hve allt of oft okkur hættir til að skipa fyrir, tilkynna og bjóða, í stað þess að leiða eigin leti barnanna að því, sem gilda ber og hentast er. Nærri má þó geta, hvort það rótgrær ekki fyrr og traustar, sem barninu finnst það sjálft hafa uppgötvað og reynt, heldur en þau fyrirmæli, sem strangur kennari er sífellt að jágast á. Þetta, sem ég hef drepið hér á, má segja að séu umlínurnar í hinu frjálsa áhugastarfi, sem ég kynntist hjá þess- um sænska skólamanni. Sjálfri fram- kvæmdinni hef ég ekki lýst, og ekki heldur sagt frá þeim árangri, sem náðzt hefur með slíkum liætti, bæði hjá Glanzelíusi og fleirum, er beita sömu aðferð. Ef til vill gefst tækifæri til þess síðar. Kennarinn: „Getið þér sagt mér hvar hæsta fjallið á jörðinni er, og hvert er nafnið?“ Nemandinn: „Það er í Asíu, og ég heiti Pétur.“ —o— Hann: „eg er fæddur á Eskifirði, en gekk í skóla á Akranesi.“ Hún: „Það var ægilega löng leið í skól- ann.“ Kennarinn: „Hvar er Marteinn Lúther fæddur?“ Nemandinn: „Já, Marteinn Lúther, hann er ekki fáeddur í fæðingarbæ sínum, heldur litlu þorpi þar skammt frá, og for- eldrar hans voru einmitt að heiman um þær mundir.“ Nýfæddi strákurinn öskrar af fullum hálsi, svo að öllum þykir nóg um. Dag nokkurn segir Páll litli við móður sína: „Kom litli bróðir frá himnum?“ Móðirin: „Já, væni minn. Hann kom frá himnum.“ Páll (hugsi): „Já, nú skil ég. Englarnir hafa ekki viljað hafa hann þarna uppi.“

x

Heimili og skóli

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.