Heimili og skóli - 01.12.1954, Blaðsíða 18

Heimili og skóli - 01.12.1954, Blaðsíða 18
126 HEIMILI OG SKÓLI FRIÐRIK HJARTAR, skólastjóri — örfá minningarorð - Þann 6. nóv. s.l. andaðist á Akra- nesi Friðrik Hjartar fyrrverandi skóla- stjóri, 66 ára gamall. Hafði hann látið af skólastjórastörfum s.l. haust vegna vanheilsu, eftir langan og erfiðan starfsdag. Hann hefur því vafalaust hugsað gott til hvíldarinnar og næðis- ins meðal ástvina og kunningja — og hvíldin kom, þótt nokkuð væri hún með öðrum hætti en hann hafði ætlað. Friðrik Hjartar á langan skólastjóra- feril að baki. Er hann hafði lokið kennaraprófi, tók hann við forstöðu brnaskólans á Suðureyri við Súganda- fjörð og stjórnaði honum í rúma tvo áratugi. Þá tók hann við stjórn barna- skólans á Siglufirði, eða nánar tiltekið haustið 1932. Gegndi hann því starfi í 13 ár. Skólaárið 1945—46 var hann námsstjóri á Norðurlandi, en þá var hann skipaður skólastjóri við barna- skólann á Akranesi og lét af því starfi s.l. haust. Dagsverkið er því orðið nokkuð langt og ekki alltaf vanda- og áhyggjulaust. Friðrik Hjartar þótti alltaf hinn ágætasti kennari, enda hafði hann til að bera marga þá kosti, sem hverjum góðum kennara eru nauðsynlegir. Einkum var því við brugðið, hve góð- ur móðurmálskennari hann var. !s- lenzkan var kjörgrein hans. Hann unni lienni heitt, og betur var hann að sér í þeim fræðum en flestir aðrir stéttarbræður hans. Tók hann saman tvær kennslubækur í íslenzku, er mik- ið hafa verið notaðar. Þá leiðbeindi hann í íslenzku á mörgum námskeið- um og var alla jafna óþreytandi að halda vörð um fagurt og rétt mál. Friðrik Hjartar vakti hvarvetna athygli þar sem hann kom á manna- mót. Hann var allra manna glaðastur, léttur og hlýr í viðmóti og hvers manns hugljúfi. Hann unni söng og gleði. Hann fann það, að það hvort tveggja fegraði og bætti lífið. Þess vegna ómuðu allar samkomur af söng, þar sem Friðrik var mættur. Hann var félagslyndur með afbrigð- um, og ekki get ég að því gert, að mér finnst íslenzk barnakennarastétt vera mun fátækari, þegar Friðrik er horf- inn úr hópnum. Hver á nú að halda uppi söng og gleði á kennaramótum

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.