Heimili og skóli - 01.12.1954, Blaðsíða 22
130
HEIMILI OG SKÓLI
Skálatúnsheimilið.
S. Buck, í þýðingu þeirra séra Jóns
Auðuns, dómprófasts, dr. Matthíasar
Jónassonar og dr. Símons Jóh. Ágústs-
sonar. Þá hefur Alþingi nú í fjárlög-
um 1955 veitt í þriðja sinn heimilinu
60 þús. kr. byggingastyrk og Reykja-
víkurbær veitt því vaxtalaust lán að
upphæð 100 þús. ki.
Þess er einnig vert að minnast, að
verzlanir í Reykjavík, Hafnarfirði og
Mosfellssveit hafa veitt heimilinu
mikilsverða hjálp með því að lána
efnivörur og áhöld.
Stjórnarnefndin hefur óneitanlega
oft verið í vanda stödd og mætt mörg-
um byrjunarörðugleikum, en fyrir
skilning á nauðsynlegu mannúðar-
máli hefur úr öllu rætzt vel með hjálp
góðra manna.
Þegar þetta er ritað, liafa alls 26
börn komið til dvalar á heimilið.
Flest hafa þau verið í einu 21, en geta
verið 22. Þar eru að jafnaði 8 stúlk-
ur að starfi auk kennara. Daggjald
er 60 kr., og þvkir stjórnarnefndinni
það ærið mikið, en við því verður ekki
gert, meðan vaxtagreiðslur af lánum
verða að leggjast á reksturinn og arð-
ur af búrekstri er enginn, fyrr en bú-
ið er að rækta landið.
Eitt höfuðatriði í rekstri svona heim-
ilis er, að vel takist með sarfsfólkið.
Það má með sanni segja hér, að „hjú-
in gera garðinn frægan“. Ef lieppnast
að fá starfsfólk, sem er vandanum
vaxið, þá er vel farið. Móðurhönd
mild og blíð þarf að sjá fyrir öllum
þörfum barnanna. í anda kristinnar
kirkju verður að starfa, annars er til
einskis barizt. Ef þetta tekst, erum
við feti nær bræðralagshugsjón manna.
Það má með sanni segja, að Skála-
túnsheimilið hafi verið heppið hvað
þetta snertir þann starfstíma, sem lið-
inn er. Stúlkurnar hafa yfirleitt verið
börnunum góðar og umhyggjusamar.