Heimili og skóli - 01.12.1954, Page 15

Heimili og skóli - 01.12.1954, Page 15
HEIMILI OG SKÓLI 123 mæli blak af teiknisögunum. Tjáning- árbannið í stjórnarskránni getur ekki rökstutt þennan mismun. Við skulum þá athuga lítiliega aðal- boðorð tjáningarfrelsisins. Hvað merk- ir það að birta hugsanir sínar? Nærri getur legið að segja, að myndaruna, er sýnir eða vekur hugaróra um athafna- rás, falli ekki undir hugtakið að birta hugsanir. Orðið „hugsanir“ gæti ef til vill gefið í skyn, að sagan sjálf birti hugsun eða að minnsta kosti hlutlægt umhugsunarefni. Samt er það ef til vill erfitt að fullyrða, að myndarunan eigi að endurvekja hugsun. Myndaröðin sjálf í samhengi gerir ráð fyrir hugsun, svo að við komumst ekki framhjá því. Verður þess víst þörf að rannsaka til- gang tjáningarfrelsisins og ákveða á þann hátt, hvort teiknisögurnar falli undir ákvæðin. Það verður tæplega dregið í efa, að tilgangur ákvæðisins er að tryggja lýð- ræðislegan áhuga á frjálsri skoðun, er ríkið ekki má setja takmörk né grípa fram í á nokkurn hátt. Það er pjóðfé- lagslegt áhugamál að girða fyrir skoð- anakúgun, sem hér ræður úrslitum. Og það eru takmarkanir á stjórnmála- legu tjáningarfrelsi, sem sérstök ástæða er til að varast, þar eð þær eru hættu- legar lýðræðislegu frelsi. . . . Það er skoðanaeinokunin, sem ber að varast. Það er svo algerlega einskis virði fyrir öryggi lýðræðislegs þjóðfélags- þroska, hvort heilaspunaverur, sem heita Ófreskjan, Ofurmennið eða Skelfir skipstjóri stikla um geiminn á tunglsgeislum eða dauðrota 17 manns með berum hnefunum einum. Til- gangur stjórnarskrárinnar er ekki að vernda þess háttar heilaspunaverur og skemmtiframleiðslu. Það er raunverulega allofríkisfull á- gengni af teiknisagnaframleiðendum að bera fyrir sig tjáningaröryggi stjóm- arskrárinnar, og engu síður hitt að krefjast þess, að þjóðfélagið færi söhn- ur á hættu, áður en það geti bannað teiknisögurnar. Þetta er að byrgja brunninn, þegar barnið er drukknað. Við getum ef til vill sleppt þessum smáskrýtnu Bússa- og Birtu- sögum, Fjögrapabba og Varahúsráðandanum, og livað þeir annars heita. En að Ó- freskjan sjálf skuli geta brugðið stjórn- arskrárvernd fyrir sig, og hennar líkar, er algerlega öfugu megin við alla skyn- semi. Þvílík vernd er ekki aðeins and- stæð anda alls tjáningafrelsis og sjálfr- ar stjórnarskrárinnar, heldur einnig „anda“ sjálfrar þessarar framleiðslu. Því sjálfir virða menn þessir engar reglur, sem leggja höft á nokkum skap- aðan hlut. Það er eigi aðeins óþarft af tilliti til tjáningafrelsis að veita sérhverri tján- ingu frelsi. Jafnvel hin glæpsamlega á- hætta — með eða móti — í nauðvarnar- sambandi við þann rétt, sem rýfur all- ar reglur, hvetur þjóðfélagið til að girða fyrir hópeitrun ungra skapgerða, sem enn eru í reifum, af völdum þeirra aðila, sem ekki liafa annað takmark með eitrun sinni en auðveldan gróða. Það er hreinn hugsanaruglingur að beita tjáningafrelsi fyrir vagn þessara bókleysingja-útgáfna. Má þegar grípa til þess ráðs, sem er alveg fyrir hönd- um í skipulögðu banni, og ber að beita því, unz sannað hefur verið, að útgáf- ur þessar séu ekki skaðlegar. Að minni hyggju hefði átt að vera

x

Heimili og skóli

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.