Heimili og skóli - 01.12.1956, Side 7

Heimili og skóli - 01.12.1956, Side 7
HEIMILI OG SKÓLI 115 það, sem að höndum ber. Foreldrum mínum var þetta eflaust mesta sorgar- efni, og þau vonuðu víst í lengstu lög, að ég myndi fá sjónina aftur og þyrfti ekki að lifa í myrkri alla ævi. En ég varð að læra eitthvað, segir Liv Cressey. Eg gat ekki gengið í skóla með sjáandi börnunr og var því send í Blindraskólann í Þrándheimi. Þar var ég í sjö ár. Okkur leið þar vel og undum okkur vel saman. Þar lærðum við það sama og önnur barnaskóla- börn, og við lékum og skemmtum okk- ur alveg eins og börn með fulla sjón. Árin liðu afar fljótt, og í sumarfríinu fór ég lieinr til foreldra rninna og syst- kina í Sandafirði, en ég varð að læra meira, og var þá ákveðið, að ég skyldi taka gagnfræðapróf í Ósló. Gekk ég síðan í sérskóla fyrir blinda á Húsabæ og tók próf ásamt nokkrum utanskóla- nemendum í Fossskóla. Þetta gekk einnig vel. Mér þótti gaman að læra og hélt því áfram að sækja ýmiss konar námsskeið í Ósló, og þar lærði ég heimilisstörf, handavinnu og vélritun. En mestan áhuga hafði ég samt á tungumálanámi, sérstaklega ensku. Og til þess að fá meiri æfingu höfðu nokk- ur okkar bréfaskipti við ungt fólk í Bretlandi, og ég skrifaðist iðulega á við ungan mann, sem hét Cressey. Ég sit og furða mig á, hve glöð og ánægð unga konan blinda getur verið. Hún barmar sér ekki fyrir neinu, nefn- ir ekki neina erfiðleika, sem hún eigi við að stríða, það er nú öðru nær, hún segir mér hve auðvelt henni veitist að ráða fram úr flestum hversdagsstörf- um. Og svo spyr ég hana, hv^r þessi Roy Cressey eiginlega sé. Og þá sé ég fyrst, hve falleg Liv er. Hún brosir, og léttur roði flæðir um andlit hennar. Hún er Ijósjarphærð og hárið eðliiega liðað, dökk á brún og brá, og bráhárin mjög löng. Hörundslitur hennar er frískur, hörundið mjúkt og slétt, og tveir djúpir spékoppar gera allt yfir- bragð hennar sætt og kvenlegt. — Roy kom til Noregs að hernám- inu loknu 1945, segir hún svo. — Hann var í flughernum og útlærður fiug- lireyflavirki. Hann var þá aðeins tví- tugur og varð mjög hrifinn af Noregi. Og þess vegna hafði hann langað til að eiga bréfaskipti við norska stúlku, og svo var það af hreinni tilviljun, að við Roy urðurn bréfavinir. Þetta var afar einkennilegt, segir Liv, — því að nú kom í ljós, að hann hafði sér- stákan áhuga fyrir blindu fólki. Hann átti heima í Brighton, og þar er stór blindraskóli, svo að hann sá daolesja blindinga þar á götum úti. Áð stríð- inu loknu fékk lrann vinnu í pósthús- inu þar, og þá fór hann öðru hvoru með póstinn upp í blindraskólann. í fyrstunni skrifaði ég honum á ritvél, en hann vissi auðvitað frá upphafi, að ég væri blind. Seinna lærði hann svo blindraskrift, og smám saman tókum við að nota hana í bréfum okkar. Þannig liðu nokkur ár. Roy gat ekki gleymt Noregi. Og svo skrifaði hann mér einu sinni og sagðist ætla að koma til Noregs í sumai'leyfinu sínu. Það gerði hann líka. Og einn dag í júní kom hann hingað og heimsótti mig. Roy Cressey hefur eflaust orðið hrif- inn, undir eins og hann sá hina indælu, blindu norsku vinkonu sína. Hún er reglulega sæt og hálffeimin, þegar hún er að segja mér frá honum, og ég reyni að ýta ofurlítið undir hana.

x

Heimili og skóli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.