Heimili og skóli - 01.12.1956, Blaðsíða 12
120
HEIMILI OG SKÓLI
heldur einnig álit og traust samferða-
mannanna.
Júdit fór í kennaraskólann og tók
þaðan ágætt kennarapróf vorið 1932.
Fyrsta árið þar á efitr var hún far-
kennari í Hegranesi í Skagafirði, en
fékk þá stöðu við Barnaskóla Siglu-
fjarðar. Þar kenndi hún til ársins 1945
og aflaði sér þar bæði trausts og virð-
ingar. En þá kom hún að Barnaskóla
Akureyrar og hefur starfað þar síðan.
Ég hef kynnzt frk. Júdit bæði sem
samkennari hennar og skólastjóri og
Hkað hvort tveggja vel. Hún er frá-
bærlega skyldurækinn og duglegur
kennari, föst í sniðum og gerir sér í
engri grein ánægða með lélegan árang-
ur, þótt það hljóti jafnan að verða
hlutskipti allra kennara að fá misjafna
uppskeru af erfiði sínu. Hún er stjórn-
söm og gerir strangar kröfur til hátt-
vísi nemenda sinna og reglusemi, svo
og allra vinnubragða. En það er hverju
barni hollur skóli. En frk. Júdit er
engin hávaðakona. Allt starfið i
kennslustofu hennar fer hljóðlega
fram. Það er traust og látlaust eins og
húsmóðirin, sem þarna stjórnar. Það
hefur verið mikið happ fyrir tvo
stærstu barnaskóla norðanlands að fá
að njóta starfskrafta Júditar.
Það atvikaðist svo, að Júdit ólst að
mestu upp á vegum móður sinnar, og
hafa þær búið saman í tæp 50 ár. En
frú Ingibjörg andaðist á síðastliðnum
vetri í hárri elli.
í almæli er, að frk. Júdit hafi reynzt
móður sinni frábærlega vel. Það út af
fyrir sig lýsir henni vel. Og nú hefur
hún tekið hinn aldna föður sinn,
Jónbjörn Gíslason, á heimili sitt, til
að búa honum þar rólega og friðsæla
ellidaga eftir um það bil 30 ára dvöl
í Vesturheimi.
Auk kennslustarfa hefur Júdit unn-
ið mjög fyrir kvenskátahreyfinguna
og leyst þar af hendi prýðilegt starf.
Einnig þar hefur hún lagt góðan og
farsælan skerf til uppeldis og þroska
margra ungra stúlkna. Það hefur jafn-
an verið viðbót við langan og oft erfið-
an vinnudag.
FrÖken Júdit er prýðilega vel gefin
kona og jafnframt búin mörgum ágæt-
um kennarahæfileikum. Ég þakka
henni bæði fyrií sjálfan mig og Barna-
skóla Akureyrar, góða samvinnu,
skyldurækni og dugnað í starfi. Ekkert
af því, sem vel er gert, verður skráð í
sandinn. Sæðið grær og vex og ber
ávexti. Það eru laun hins óþekkta sáð-
rnanns í hvaða stétt og stöðu sem
hann er.
H. J. M.
Gott ráð.
Rithöfundur nokkur hafði sent blaði
einu grein eftir sig, en hafði ekkert heyrt
frá ritstjóranum. Loks gat hann ekki á sér
setið lengur, en skrifaði honum með all-
miklum þunga, þar sem hann krafðist þess,
að hann annaðhvort birti greinina eða
sendi hana aftur, tafarlaust, því að hann
kvaðst hafa mörg járn í eldinum.
Nokkru síðar fékk hann bréf frá rit-
stjóranum ásamt greininni. í bréfinu
kveðst ritstjórinn ráða honum eindregið
til að koma greininni fyrir hjá hinum
járnunum.