Heimili og skóli - 01.12.1956, Síða 14

Heimili og skóli - 01.12.1956, Síða 14
122 HEIMILI OG SKÓLI aðstoðar og eru nú 20 ár liðin síðan fyrstu sérbekkirnir voru stofnaðir í Kaupmanna- höfn í þeim tilgangi. Voru valin í þá börn, sem ekki virtust geta lært að lesa að öllu óbreyttu, en voru hins vegar samkvæmt greindarmælingum með allt að meðalgreind eða meira. Nafn þess manns, sem átti frum- kvæði að þessari nýjung er nú nefnt meðal þeirra, sem hafa markað tímamót í mann- úðar- og menningarmálum. Um þessa nýjung eins og margt annað, sem til framfara horfir, má sega, að mjór er mikils vísir, því að nú er svo komið, að sérbekkirnir, þar sem reynt er að bæta úr vandræðum barna, sem ekki eiga samleið með fjöldanum, skipta hundruðum, en sér- kennslu njóta nú 3—5% allra barna í Dan- mörku og í þeim bæjarfélögum þar sem þessi mál eru lengst á veg komin 5—-10%. Þegar starfið hófst, héldu menn að nóg væri að veita 1—2 prósentum einhverja auka- aðstoð. II. Skólasálfræðingar og kennarar leggja á það höfuðáherzlu að erfiðleikum barnanna hvað lestrarnám varðar sé veitt athygli eigi síðar en á öðru skólaári, en helzt á því fyrsta. Danskir kennarar geta ef þeir vilja hópgreindarprófað nemendur sína og veitir það vitanlega mjög aukna möguleika til þess að kynnast hverjum einstaklingi nánar en ella. Greindin er eins og menn vita samsett úr mörgum þáttum og getur einn þáttur hennar verið vel þroskaður þótt aðr- ir þættir séu það ekki. Einblíni kennari um of á einn vel þroskaðan greindarþátt og geri kröfur til nemanda síns samkvæmt því, getur það orðið til þess, að mat hans á nemandanum verði alrangt og það leiðir vitanlega fyrr eða síðar til einhverra vand- ræða. Hópgreindarprófin, sem eru mjög meðfærileg og auðvelt að læra að nota, geta oft vísað kennurunum rétta leið í mati á nemendum sínum. Þessi próf gera vitan- lega ekki hinar einstaklingsbundnu prófan- ir óþarfar, enda hafa Danir þann hátt á, að ef kennari telur að barn geti ekki fylgzt með námi hvort sem um er að ræða lestrar- nám eða eitthvað annað, er bamið sent til skólasálfræðings fyrir milligöngu skóla- stjóra. Sálfræðingurinn greindarprófar barn- ið með að minnsta kosti tvenns konar greindarprófum auk lestrarprófa, sem geta leitt í ljós í hverju lestrarörðugleikarnir eru fólgnir. Eru lestrarpóf þessi hæfð hverju aldursskeiði fyrir sig. Ef greind barnsins er allt að meðallagi og lestrar- öðugleikarnir ekki mjög miklir, er venju- lega farin sú leið að útvega baminu auka- kennslu innan vébanda skólans nokkrum sinnum á viku, en það látið halda áfram námi í sínum bekk eigi að síður. Komi þessi ráðstöfun ekki að fullu gagni eða séu örðugleikarnir svo alvarlegir, að lítil líkindi séu til þess, að þessi ráðstöfun ein leysi vandann, eru börnin sett í sérstakan lestrar- bekk. Er tala nemenda í þeim bekkjum lægri en í öðrum bekkjum skólanna og má í Kaupmannahöfn ekki fara fram úr 15. Er nemendatalan höfð lág til þess, að kenn- arinn geti sinnt hverjum einstökum að ein- hverju gagni í hverri kennslustund. Sé um mjög mikla erfiðleika að ræða, er tala nem- enda í bekk höfð enn þá lægri. Orsakir til lestrarörðugleika eru svo margvíslegar, að varla er hægt að gera ráð fyrir að tvö börn séu illa fær í lestri af nákvæmlega sömu ástæðum. Aður fyrr kom að vísu oft fyrir að börn áttu við lestrarörðugleika að stríða vegna þess, að þeim hafði verið kennt með lestraraðferð, sem ekki átti við þau. Þessi orsök er nú að mestu, eða öllu leyti úr sög- unni í Danmörku, vegna þess að lestrarsér-

x

Heimili og skóli

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.