Heimili og skóli - 01.12.1956, Page 17

Heimili og skóli - 01.12.1956, Page 17
HEIMILI OG SKÓLI 125 tölu varðar miklu lægra í Danmörku en hér og mátti þetta teljast allgott kaup fyr- ir um það bil fjórum árum. Hvað lestur varðaði lásu 10 ágætlega, allur fjöldinn sæmilega en 3 mjög illa. Allt voru þetta unglingar, sem höfðu strandað algerlega í lestrarnámi í barnaskóla og hefðu aldrei átt viðreisnar von við neitt framhaldsnám ef þeir hefðu ekki fengið aukaaðstoð. Það er því sýnilegt, að starfsemin í lestrar- bekkjunum er jákvæð, en hennar nutu 2700 böm í Kaupmannahöfn árið 1954 en 30 fyrsta árið sem hún var veitt. IV. Norski fulltrúinn gat þess í skýrslu sinni, að Norðmenn væru langt á eftir Dönum hvað aðstoð við öll afbrigðileg börn varð- aði, en nokkur aðstoð væri þó hafin eink- um í Oslo. Fjöldi þeirra barna, sem þarf á aðstoð að halda virðist vera hlutfallslega hinn sami og í Danmörku enda ekki við öðru að búast. Svíar gera ráð fyrir að allt að 10% barna geti þurft á sérstakri aðstoð að halda við nám, en langt er frá því, að því marki sé náð í Svíþjóð. Finnski fulltrúinn kvaðst vera sér þess fullkomlega meðvitandi, að Finnar hefðu orðið aftur úr á þessu sviði. Ekki vegna þess að þá skorti áhuga á málinu heldur fé til framkvæmda. í skýrslu Finnans komu þó fram merkilegar upplýsingar. Þegar síð- ara stríðinu lauk höfðu 3.500 Finnar skadd- ast á heila og þurftu í því sambandi alls konar aðstoð. Prófessor Niilo Maki hefur utanna mest athugað þessa sjúklinga, en sumir þeirra reyndust hafa gleymt að lesa. Þegar farið var að kenna þeim lestur á ný, kom í ljós, að örðugleikar þeirra voru ekki eðlislega ólíkir örðugleikum barna, sem eiga erfitt með lestrarnám, t. d. var ekki oalgengt að sjúklingurinn þekkti stafina og gat komið þeim saman í orð, en honum vár ómögulegt að sjá nerna tvo bókstafi í einu. Þeir, sem hafa kennt bömum, sem eiga við lestrarörðugleika að stríða að lesa, vita, að börnin lesa oft reiprennandi stutt orð, t. d. tveggja og þriggja stafa orð, en þegar stöfunum fjölgar, rennur allt út í sandinn hjá þeim. Til eru fræðimenn einkum í hópi lækna, sem vilja halda því fram að lestrarörðug- leikar séu ættgengur sjúkdómur, en fullar sannanir hafa ekki fengizt fyrir þeirri skoð- un, enda væri lítt glæsilegt fyrir þá, sem hafa glímt lengi við lestrarnámið, ef þeir mættu eiga von á því, að syndir feðranna kæmu fram á börnunum í þriðja og fjórða lið. I sambandi við mótið var mikil sýning námsbóka og alls konar hjálpartækja og kenndi þar margra grasa, það er algild regla, að ef barn hefur strandað við lestrar- nám sitt, er heppilegast, þegar aðstoð við það hefst, að skipta um námsbækur. Osigr- ar fortíðarinnar eru svo nátengdir þeim bókum, sem börnunum eru áður kunnar, að bezt er að þurfa ekki að nota þær. Greini- legt er, að höfundar lestrarbóka á Norður- löndum hafa lagt sig mjög fram í því að gera þær sem bezt úr garði. Letrið var stærra í þeim bókum, sem ætlaðar voru börnum með mikla lestrarörðugleika, lit- myndir prýddu þær velflestar og tekið var tillit til þeirra athuguna, sem gerðar hafa verið skipulagsbundið hvað lesbækur varð- ar, en þær sýndu að flestar lesbækur eru alltof erfiðar byrjendum, orðin koma of sjaldan fyrir, svo að þau ná ekki að fest- ast í minni. Onnur orð eru hins vegar óþarflega oft á ferðinni. Meðal hjálpartækja má nefna alls konar stafaöskjur, spjöld með myndum og léttum setningum, orðaskammsjá, þar sem eitt og

x

Heimili og skóli

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.