Heimili og skóli - 01.02.1961, Qupperneq 16
10
HEIMILI OG SKÓLI
Samvinna skóla og neimila
EFTIR NIELS JÖRGEN BISGAARD
Heimilis-heimsóknir. (N iðurlag.)
Það er tímafrekur kynningarháttur
að framkvæma heimsóknir á heimili
foreldranna. Ég held vissulega, að
raunverulegur og góður árangur geti
orðið af slíkum heimsóknum, en fyrst
ber þó að athuga, að auðvitað geðjast
ekki öllum kennurum að þess háttar
né hafa tíma til þess. Og auk þess er
athyglisvert, hvort skólastjóri sá hafði
ekki rétt fyrir sér, sem mælti á þessa
leið, (þó átti skóli hans einmitt óvenju
góða samvinnu við heimilin): „Eðli-
legur vettvangur kennarans og starfs-
svið er nú einu sinni skólinn — ég á
við, að þar eigi hann að hafa tal af
foreldrunum. Það ætti að vera hrein
undantekning, að kennarinn heimsæki
heimilin.“
Umrœðufundir foreldra.
Ég hef sjálfur stjórnað umræðu-
fundum foreldra í fjóra vetur, mér til
mikillar gleði.
Verkleg framkvæmd hefur hafizt á
þann hátt, að skólinn, foreldrafélagið
og skólanefndin hafa sameiginlega sent
öllum heimilunum boðsbréf um sam-
ræðufundi. Valin hafa verið 12—15
fundarkvöld til tveggja stunda fundar
einu sinni í viku.
Ég hef verið svo heppinn að hafa
sömu þátttakendur, svo árum skipti,
suma meira að segja fjögur ár í röð.
Þetta hefur hvatt mig til að halda
áfram. Ég mun hér á eftir drepa á
ýmis atriði, sem hafa glatt mig. Um-
ræðuefni er auðvitað fyrirfram ákveð-
ið: hér á að spjalla um börn, uppeldi
og skóla.
Það er góð hugmynd að láta þátttak-
endur greiða 5—10 kr. Upphæðin
greiðist fyrsta kvöldið og er notuð til
að kaupa fyrir væntanlega „heimilda-
bók“ („grundbog") og til að greiða
kostnað við loka-veizlu. Ritari er kos-
inn þegar fyrsta kvöldið, og tekur
hann á móti forfallatilkynningum o. s.
frv. Fyrirfram er hægt áð búast við
miklum áhuga þeirra foreldra, sem
hafa gefið sig fram, og löngun þeirra
til að rökræða um skóla, börn og upp-
eldi — aðalatriðið er aðeins að hitta á
rétta leið og sameina starfhæfan og
áhugasaman viðmælendahóp. Efnisval
gæti t. d. verið:
1. Þegar skólaganga barnsins hefst.
2. Erfiðleikar á barnsævinni (á
ýmsu aldursskeiði).
3. Agi og ögunarhættir (hlýðni, —
disciplin).
4. Námslestur — sjónvarp — hátta-
tími.
5. Leikur — þroskandi starf.
6. Kynferðislegt uppeldi.
7. Hitt og þetta um nám og minni.
8. Tími og peningar.
9. Áhrif foreldra á svonefnda iðnl
og leti.
10. Vangefin börn.
11. Einkunnabók — skyndipróf —
aðalpróf.
12. Hvernig mynduð þér hugsa yður
fyrirkomulag skólans?