Heimili og skóli - 01.02.1961, Qupperneq 17
HEIMILI OG SKÓLI
11
Heimildarrit (,,Grundbog“). (Um
undirstöðufræðslu o. s. frv.)
Heimildarrit eftir samkomulagi og
vali, (gæti t. d. verið: Áse-Grude-
Skard: Hvers getum við vænzt af börn-
um á ýmsum aldursskeiðum? og A. M.
Nörvig: Heilbrigt barn og foreldrar
þess, eða Heimildarrit Útvarpsins:
Heimili og börn.) En annars gæti nægt
að vísa til heimildarrita ákveðin kvöld.
Mikið veltur á því að fá einn eða fleiri
úr hópi foreldranna til að vera máls-
hefjandi (frummælandi).
Kvikmyndir.
í tilbreytingarskyni mætti sýna kvik-
myndir eitt kvöldið. (Höf. vísar til
„Statens filmcentral“, en þar er úr
miklu að velja!)
Hjalfiuidir. (,,Summemöde“).
Sé foreldrahópurinn stór, mætti
öðru hverju skipta honum í „hjal-
fundi“. Kennarinn skrifar 2—3 spurn-
ingar á töfluna, og síðan er hópnum
skipt í 3—4 manna smádeildir, sem síð-
an „hjala“, þ. e. spjalla sín á milli um
spurningarnar í 5—15 mínútur. Síðan
skýrir hver deildarfulltrúi frá niður-
stöðu sinnar deildar. Kennarinn skrif-
ar síðan aðalatriðin á töfluna, og hóp-
urinn ber síðan saman skoðanir smá-
deildanna.
Hringborðs-samrœður.
Einnio mætti gera kvöldfundinn að
O O
eins konar „hringborðs-samræðum“ og
láta alla þátttakendur tjá skoðun sína í
allt að 5-mínútna ræðu.
Látalætisleikur (,,ekstemporalspil“).
Það mætti einnig láta foreldrana
leika dálítinn látalætisleik. Þá eru ein-
ir þeirra sendir fram fyrir hurðina
sem snöggvast, og er þá stungið smá-
spjaldi í lófa þeirra. Á spjaldinu stend-
ur t. d.: „Þegar þér komið inn aftur,
eruð þér kennari í 7. bekk. Þér hafið
nýskeð verið með bekkinn hálfan mán-
uð í útileguskóla (,,Lejrskole“). Eftir
heimkomuna hefur kvisazt um ýmis
atvik á svefnloftum rttileguskólans á
kvöldin. Allmargir foreldranna lrafa
beðið um fund til þess að heyra skoð-
un yðar á þessu máli. — Þegar þér nú
komið inn aftur, hagið þér yður sem
bekkjarkennari, bjóðið fundarmenn
velkomna og stjórnið síðan fundi!“
Áður hafa svo hin öll fengið áþekkar
leiðbeiningar.
Sjónleikur látinn skýra ýmis málefni
skóla og uppeldis.
Rithöfundurinn lektor K. B. Mön-
sted hefur í sambandi við bók sína
„Leikstarfsemi í skólum“ samið nokk-
ur smáhefti, sem nefnast: „Við leikum
gamanleik I,—VI.“
VII. hefti heitir „Æskuleikir“. Höf-
undur hefur sennilega ætlazt til, að
þessir smáleikir væru sýndir í efstu
bekkjum barnaskólans, í framhalds-
skólum, lýðháskólum o. s. frv. í því
skyni að veita fjölskylduþekkingu og
fleira eftir nýjum leiðum. Eg fékk lán-
að þetta hefti, sem þá var aðeins fjöl-
ritað í örfáum eintökum. Mér hafði
sem sé dottið í hug að láta foreldrana
í einum samræðuhóp vetrarins vera
sjálfa leikendurna. Við höguðum starfi
okkar á þann hátt, að foreldrarnir lásu
heima ákveðinn kafla (hlutverkin átti
ekki að læra utanbókar), og á kvöld-
fundinum lékum við svo fullum fet-