Heimili og skóli - 01.02.1961, Qupperneq 24

Heimili og skóli - 01.02.1961, Qupperneq 24
18 HEIMILI OG SKÓLI börn. Maður á því að venjast, að börn séu feimin við sbk tækifæri, en ein- mitt þetta; að fæst þessi börn höfðu áður séð kirkju, myndi gera þau hálfu feimnari og vandræðalegri en ella. Fæst börnin töluðu norsku, heldur annað hvort lappnesku eða „kvænsku“ þ. e. mállýzka frá Norður-Noregi. Eg liafði því fyrir framan mig áheyrendur, sem töluðu þrjú tungu- mál, og ég kveið fyrir að þurfa að nota túlk. En hins vegar fann ég til þess, að ef það var nokkurn tíma skylda mín að leggja mig allan fram, þá var það frammi fyrir þessum börnum, sem gengið liöfðu fjórar mílur yfir fjallveg, höfðu aldrei séð kirkju og hlökkuðu til. Ég fann að hlutverk mitt var erfitt. Þau stóðu í röðum á kirkjugólfinu, drengirnir öðrum megin, en stúlkurn- ar hinum megin. Ég gekk fram gólfið í milli raðanna á meðan þau sungu eitt sálmvers. Þennan dag var biskup- inn hræddari en börnin. Nú var um að gera að hafa fyrstu spuminguna svo auðvelda, að þeim veittist öllum létt að svara henni — hugsaði ég. — Þú verður að finna ákaf- lega einfaldar spurningar og tala hægt og skýrt: „Hvað heit-ir þett-a hús, sem við er- um nú í?“ Eins og byssuskot kom svarði; „Kirkja.“ „Já, það heitir kirkja, en til hvers eru slík hús ætluð, sem við köllum kirkjur?“ Margar hendur voru á lofti. Ég benti á Lappadreng. „Til uppbyggingar.“ „Rétt, þær eru okkur til uppbygg- ingar.“ En nú gleymdi ég í gleði minni allri varfærni og þyngdi spurningarn- ar meir og meir. „En þegar þú nefnir uppbyggingu, þá langar mig til að spyrja, hvað það er, sem við eigum að byggja upp hér í kirkjunni." Sami drengur rétti enn upp hönd- ina, og ég gaf honum bendingu um að svara. „Við eigum að byggja upp eilífa líf- ið í hjörtum okkar.“ — Það leið nokkur stund áður en ég gat áttað mig, eða sagt nokkurt orð. Aldrei hafði ég fengið slíkt svar. Seinna spurði ég kennarana. Nei, þeir vissu ekkert hvaðan drengurinn hafði þetta. Og þetta var 12 ára Lappadreng- ur. Þeir fullyrtu, að hann hefði þetta svar ekki úr neinni bók. En hvað um það — svarið var fengið, og ég hef boð- að það alls staðar, þar sem ég hef haft tækifæri til, og ég hef bætt því við: Af þessum dreng hef ég lært, hvað söfn- uður er: Söfnuður er það samfélag manna þar sem hver hjálpar öðrum til að byggja upp eilífa lífið í hjörtum sínum. Þetta samtal stendur eins og það sé höafgvið í oranít í hug mínum. Það var eins og börnin bæru mig lengra og lengra. Því miður skrifaði ég ekkert, en ég man það bezt, að allt gekk eins og í sögu. Engin vandræði með málið. Það var létt yfir öllum. Eins og fráir fjallahreinar bárust börnin með mér hvert sem ég vildi. Svo var það altarið. — Helmingur- inn af börnunum hafði aldrei komið í kirkju áður. — Kórinn í Tanakirkju er stór. Ég raðaði minnstu börnunum næst grátunum. Hin stærri stóðu í röð- um þar fyrir utan. Síðan gekk ég inn

x

Heimili og skóli

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.