Heimili og skóli - 01.02.1961, Síða 26

Heimili og skóli - 01.02.1961, Síða 26
20 HEIMILI OG SKÓLl Eg fann krónuna mína aftur Aldrei liafa börnin verið eins löt, kærulaus, eyðslusöm, skemmtanafíkin eða haldin slíkum afbrotahneigðum og nú. Þetta er auðvelt að sanna og þarf ekki annað en skýrslur frá lögreglu og frásagnir blaða. Eitthvað á þessa leið, og þó með nokkrum óprenthæfum áherzlum, sagði mætur maður á góðra vina fundi fyrir nokkrum dögum. Sama dag og svo var mælt til hinna ungu borgara, komu fyrir tvö atvik er nú skal frá greina: Eldri kona kom út úr verzlun einni í miðbænum og hafði pinkla marga í höndum. Nokkrir smá- strákar stóðu við búðargluggann. Kon- an missti peningaseðil um leið og hún gekk norður götuna. Strákarnir tóku hann upp og skröfuðu saman í hálfum hljóðum. Þarna höfðu þeir nokkurn gjaldeyri í höndum og innan við búð- argluggann glitraði á margan eiguleg- an hlut. Samkvæmt kenningunni um spillingu æskunnar var framhaldið auðráðið. En hér fór á aðra leið. Strák- arnir tóku á sprettinn, náðu konunni og skiluðu henni seðlinum og varð hún alveg forviða. Stundu síðar snerust nokkur börn á barnaskólaaldri á gangstéttinni og virt- ust vera að leita að einhverju. Hafið þið týnt einhverju? Það var nú bara meta, en hitt er víst, að engin kynslóð hefur ráð á að glata því bezta, sem hún tók í arf frá feðrum og mæðrum, og eitt af þeim sígildu verðmætum er trúin. H. J. M. króna, sagði framsettur strákur, sem hafði sundfötin sín undir peysunni, við vorum að fara í sund. Hérna er króna í staðinn ef þig vantar. Ja, kannski, en ég get skilað þér henni aftur. Eigðu hana góði, ég týni henni kannski annars. Þakka þér fyrir, sagði stráksi. Seinna um daginn var sá, er þetta ritar, að verzla. Er þá hnippt í mig og er þar kominn krónu-drengurinn og réttir mér peninginn með þessum orð- um: Ég fann krónuna mína aftur, og hérna er sú, sem þú lánaðir mér. Ég verð að segja það, að þennan dag liöfðu börnin betur. — X. iDagur, Akureyri.) Gömul kona bjó alein i kofa einum uppi á allháum hól. Morgun einn, þegar hún fór á fullri ferð niður brekkuna með sláttuvél- ina sína á undan sér, nam bílstjóri einn snögglega staðar á veginum fyrir neðan og kallaði til gömlu konunnar: „Ég var nálega dauður af hræðslu, er ég sá yður koma á fieygiferð niður brekkuna á eftir sláttuvélinni. Þér ættuð ekki að leika yður að slíku á yðar aldri. Það gæti kostað yður lífið." „Ungi maður," sagði hún og rétti vísifing- urinn upp í loftið. „Akið heim og lesið blöð- in yðar. Látið mig svo vita, hve margar 86 ára gamlar konur hafa látið lífið af því að aka garðsláttuvél niður brekku. Og takið svo einnig eftir því, hve margir ungir menn eru drepnir er þeir aka út á þjóðveginn í vagni sínum." Gamla konan sneri svo aftur við til sláttu- vélarinnar, en ungi maðurinn ók af stað mjög hugsandi.

x

Heimili og skóli

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.