Heimili og skóli - 01.02.1961, Side 27

Heimili og skóli - 01.02.1961, Side 27
HEIMILI OCx SKÓLI 21 Bækur og rit Sagati okkar. Utgefandi Ríkisútgáfa námsbóka. Þetta er falleg bók og vönduð á allan hátt. Bókin, sem er 80 blaðsíður að stærð, er ætluð níu ára börnum, ekki sem námsbók til að taka próf að loknum lestri, heldur eins konar lestr- arbók, sem opnar fyrir hinum ungu dyr sögu lands og þjóðar. Vilbergur J úlíusson og Olaf- ur Þ. Kristjánsson skólastjórar tóku efnið saman, en Bjarni Jónsson kennari teiknaði myndirnar, en í bókinni er mikill fjöldi mynda, og margar í litum, svo að segja má, að mun meira sé af myndum en lesmáli. Þetta er örstutt ágrip af íslendingasögunni frá upp- hafi íslands byggðar og fram undir vora daga. Þarna er byrjað á Ingólfi Arnarsyni og land- námi hans og endað á lýðveldisstofnuninni. En frá öllu þessu er sagt á svo einfaldan hátt, að þess verður varla vart, að þetta sé fræðslu- bók, og hinn mikli myndafjöldi gefur öllu líf. Þrátt fyrir það að bókin er að verulegum hluta myndir, hefur tekizt að koma þarna að ótrúlega miklum fróðleik um líf og siigu þjóðarinnar, og leggja þar með góðan grund- völl að sögunáminu síðar. Þetta er vafalaust fallegasta bókin og skemmtilegasta, sem Rík- isútgáfan hefur sent frá sér og stenzt fullkom- lega samanburð við hliðstæðar bækur í öðrum menningarlöndum. Hafi hún þökk fyrir. Það mun vera ætlazt til að bók þessi sé notuð í níu ára bekkjum barnaskólanna. Hún er þó eng- an veginn einskorðuð við það aldursskeið. Ég vil benda á að bók þessi er tilvalin afmælis- gjöf til barna 7—10 ára. Það væri sannarlega ánægjulegt fyrir foreldra að fletta þessari bók með börnum sínum, skýra myndirnar og spjalla um efnið. Þeim tíma er vel varið. Frá- gangur bókarinnar er prýðilegur. Mættum við fá meira af svona bókum frá Ríkisútgáf- unni? Tveir bteklingar. Þá hafa Heimili og skóla einnig borizt tveir bæklingar frá Bindindisfélagi íslenzkra kenn- ara. Hinn fyrri er Vinnubók, sem ætluð er til notkunar við bindindisfræðslu í skólum, 10 blaðsíður, sem Marínó Stefánsson kennari í Reykjavík hefur teiknað og tekið saman. Er ætlazt til að vinnubók þessi sé notuð í sam- bandi við fræðsluritið „Ungur nemur, gamall temur“, sem félagið lét taka saman fyrir fá- einum árum og nú er notað í barnaskólum. Vinnubókarblöð þessi eru fjölrituð í fjölrit- unarstofu Jóns Hilmars Magnússonar þenn- ara á Akureyri. Þessi vinnubók hefur verið send öllum tólf ára börnum í landinu ó- keypis. Unglingsárin. Þetta er lítill bæklingur með mörgum myndum og fjallar um heilbrigðar lífsvenjur ungra stúlkna og vandamál þeirra á unglingsárunum. Jónas Jónsson kennari frá Brekknakoti hefur þýtt bækling þennan úr sænsku, en Bindindisfélag íslenzkra kennara gefið hann út. Þetta rit heflr einnig verið sent ókeypis öllum tólf ára stúlfum 'í landinu, og annast barnaskólarnir dreifinguna. Þetta er mynd úr ritinu, og fylgir henni þessi texti: Mitt bezta fegrunarmeðal: Róleg- ur, djúpur svejn. Magni. Loks hefur Heimili og skóla borizt blað Bindindisfélags íslenzkra kennara, 2. og 3. hefti 1960. Þetta litla blað fer til allra kennara við barna- og unglingaskóla á landinu, og flytur greinar um bindindisfræðslu og bind- indismál. Ritstjóri er Hannes J. Magnússon.

x

Heimili og skóli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.