Heimili og skóli - 01.02.1962, Síða 8
„HÉR KOM ÍSLENZKT AFL, SEM HÓF
UPP ÚR JÖRÐU STEININN“
STEPHAN G. STEPHANSSON
500 mannamyndir prýða bókina, sem er 484
blaðsíður með 455 æviskrám og samtals 6615
mannanöfnum. — Bókhlöðuverð kr. 480.00.
Útgáfa Vestur-íslenzkra æviskráa þjónar tvenns konar
tilgangi. Annars vegar er þar skjalfestur og um leið
gerður heyrin kunnur á Islandi nokkur þáttur af þeirri
sögu, sem landar vorir hafa skapað í Vesturheimi, og
gefið sýnishorn af þeirri þjóðfélagsaðstöðu, sem þeir
hafa skapað sér, þar sem þar er getið starfa og stöðu
mikils fjölda manna af íslenzkum stofni. Á hinn bóg-
inn á bókin að skapa möguleika á, að koma á fót bein-
um persónulegum kvnnum á milli
manna yfir hafið. Ættfærslur til manna
á íslandi gera mönnum hér heima kleift
að hafa upp á ættmennum sínum vestra,
og þeim vestan hafs gefur hún einnig
möguleika til að leita uppi frændur á
íslandi. Þannig geta skapazt ný tengsl
á milli þjóðanna.
Umfram allt er rit þetta mikilvægt tillag til íslenzkrar ættfræði og per-
sónusögu, og það hefur mikið þjóðemislegt gildi.
VESTUR-ÍSLENZKAR ÆVISKRÁR
eftir Benjamín Kristjánsson ættu sem flestir að reyna að eignast og not-
færa sér sem lykil til aukinna samskipta milli íslendinga austan hafs
og vestan.
BÓKAFORLAG ODDS BJÖRNSSONAR