Heimili og skóli - 01.02.1962, Qupperneq 37
HEIMILI OG SKÓLI
29
Fimmtugur:
GUÐVIN GUNNLAUGSSON
kennari
Gviðvin Gunnlaugsson kennari við
Barnaskóla Akureyrir varð fimmtugur
24. janúar sl. Hann er fæddur að Há-
leggsstöðum, Hofshreppi í Skagafirði
24. janúar árið 1912. Foreldrar hans
voru Gunnlaugur Jón Jóhannsson og
Jónína Sigurðardóttir frá Skröflustöð-
um í Svarfaðardal.
Guðvin var óreglulegur nemandi í
Menntaskólanum á Akureyri veturinn
1936—37. Kennaraprófi lauk hann vor-
ið 1940 og hóf þegar kennslu um
haustið í Rípurhreppi í Skagafirði.
Hann var skólastjóri barnaskólans á
Svalbarðsströnd í Suður-Þingeyjarsýslu
1944—1956, en þá gerðist hann kenn-
ari við Barnaskóla Akureyrar og hefur
verið það síðan. Á Svalbarðsströnd var
hann bókavörður og formaður lestrar-
félagsins um langt skeið. Hann er nú
afgreiðslumaður Heimilis og skóla.
Guðvin er tvíkvæntur. Fyrri kona
hans var Þóra Guðný Jóhannesdóttir
frá Finnmörk í Miðfirði. Lézt hún fyr-
ir nokkrum árum. Börn þeirra hjóna
eru: Auður, gift Herði Jörundssyni
málara, og Baldur og Sæmundur, báð-
ir við nám. Seinni kona Guðvins er
Irene Gook, kaupkona, brezkur ræðis-
maður á Akureyri.
Guðvin Gunnlaugsson er hið mesta
prúðmenni og Ijúfur í framkomu.
„Sælir eru hógværir,“ mætti segja um
Guðvin Gunnlaugsson, svo fjarri er
það honum að tylla sér á tá og sýnast
meiri en hann er. Hann þarf þess
heldur ekki. Þeir sem þekkja Guðvin
kunna vel að meta hans mörgu og
góðu kosti og ekki sízt þeir, sem kynn-
ast honum mest og bezt og vinna með
honum. Hann er mjög farsæll kennari,
samvizkusamur og frábærlega skyldu-
rækinn. Hann er hversdagslega glaður