Heimili og skóli - 01.02.1962, Side 13

Heimili og skóli - 01.02.1962, Side 13
HEIMILI OG SKÓLI 5 20. öld sjá menn blasa við möguleika, sem aldrei hafa þekkzt áður. Ómælis- víddir geimsins opnast sjónum manna og veröldin öll bíður þess að þjóna hugviti mannsins. En hvað gerist þá? Loks vaknar maðurinn af dvala sínum. Vísinda- maðurinn lítur upp frá smásjánni og spyr: Hvert erum við annars að fara? Menn hrökkva upp við vondan draum og sjá sér til skelfingar, að þeir kunna ekki að njóta þess, sem þeir hafa aflað. Hvar hefur nú hinum mikla völundi raunsæisins, — homo sapiens —, skjátl- azt? Jú, honum hefur gleymzt, að sú lífsvizka, sá manndómsþorsti og þau skapgerðarheilindi, sem þarf til þess að maðurinn geti lifað sjálfum sér og öðrum til farsældar, verða ekki metin á kvarða raunvísinda. Ógæfa nútíma- mannsins er að vísu ekki sú, að hann skuli hafa leitazt við að skilja og skýra umheiminn með nákvæmum raunvís- indalegum rannsóknum. Ógæfa hans er, að hann skuli hafa reynt að skilja og skýra allt með sömu aðferðum. Það er staðreynd að á þessari öld hefur hin- um mannlegu fræðigreinum (human- istisku) hrakað að sama skapi og raun- vísindum hefur farið fram. Þetta er e. t. v. ekki svo ljóst á yfirborðinu, því að vissulega hafa hugvísindin auk- izt að fyrirferð á seinni árum. Þau hafa reynt að apa eftir rannsóknaraðferðir raunvísindanna, en um leið týnt sjálf- um sér og því siðræna og menningar- lega gildi, sem þeim var ætlað að hafa fyrir mannkynið. Siðfræðin glataði sið- rænu gildi sínu, guðfræðin glataði guðstrúnni, málfræðin missti sjónar af fegurð tungunnar, — og sálarfræðin tapaði sálinni. Og nú er maðurinn að vakna og er óþyrmilega minntur á orð Biblíunnar: „Hvað stoðar það manninn, þótt hann eignist allan heiminn, ef hann bíður tjón á sálu sinni?“ Vissulega standa Vesturlönd and- spænis menningarlegri kreppu, en sem betur fer herðir hún svo fast að, að maðurinn neyðist til að leita á vit sjálfs síns. Ég segi, sem betur fer, því að það er sannfæring mín, að þroski manns- ins fari eftir því, hversu ótrauður hann er að horfast í augu við sjálfan sig. Slík sjálfsrýni mun alltaf vera afleið- ing andlegrar vanlíðunar. Vanlíðan, sem lýsir sér í kvíða og öryggisleysi, er einmitt það einkenni, sem hæst ber í listum og bókmenntum nútímans. Og það er hún, sem fæðir af sér þá inn- hverfu vestrænnar menningar, sem get- ur orðið frjóangi nýs menningarskeiðs, ef maðurinn guggnar ekki undir böl- mæði sinni, heldur brýtur sér leið í gegnum hana í átt til æðri verðmæta. Allt frá upphafi vísindalegrar sálar- fræði, — um miðja síðustu öld, — hafa sálfræðingar verið önnum kafnir við að mæla allt, sem mælt varð í sálarlífi mannsins: greind, áhugasvið, verk- hæfni, — og jafnvel skapgerð og per- sónuleika. Engin rannsókn þótti skó- bótarvirði nema hægt væri að fella hana inn í formúlur og kvóta. Og í sama anda reyndu menn að finna grundvöll vísindalegs barnauppeldis. Um skeið leit út fyrir, að sálfræðingar ætluðu að gera hin svokölluðu „skil- orðsbundnu taugaviðbrögð (con- ditioned reflexes) að lausnarorði sínu. Samkvæmt því var litið á smábarnið eins og deigt vax, sem móta mætti eft- ir vild. Uppalandanmn bar að setja

x

Heimili og skóli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.