Heimili og skóli - 01.02.1962, Blaðsíða 25

Heimili og skóli - 01.02.1962, Blaðsíða 25
HEIMILI OG SKÓLI 17 utan ramma þessarar greinar — hér verður aðeins gengið út frá, að þeirri algeru uppgjöf, sem speglast í hinum tilvitnuðu orðum í yfirskrift greinar- innar, sé hafnað, og allur þorri for- eldra reyni að spyrna við fótum og eiga sinn þátt í að móta heilbrigt við- horf uppvaxandi æsku til peninga- mála. Svo mikið sem rætt er og ritað um fjármál, þá er lítið komið inn á þetta. Foreldrar eiga hvergi aðgang að hag- nýtum leiðbeiningum um það, hvaða aðferðir komi til greina, séu nothæfar eða heppilegar til þess að kenna börn- um meðferð peninga. Hver og einn verður að búa til sína eigin aðferð eða hafa enga — enda líklegt, að svo sé víða, að mestu látið reka á reiðanum, nauðugt — viljugt, eða í andvaraleysi og án umhugsunar. í stuttri grein verður ekki bætt úr þessari vöntun leiðbeininga, enda ekki á færi greinarhöfundar. Hér er fyrst og fremst ætlunin að varpa fram þeirri spumingu, lwort foreldrum pyki ekki ástæða til að ræða pessi mál og rita um pau, og m. a. reyna að móta einhverj- ar meginreglur, sem hafa megi til hlið- sjónar. Til frekari glöggvunar á því, hvað átt er við, og sem hugsanlegan grund- völl til umræðna um málefnið, ef ein- hver kynni að finna hvöt hjá sér til að taka þær upp, skal hér drepið á fáein atriði málsins. Kynni barna af peningum. Sumt fólk hefur skömm á peningum sem einhverju illu eða óhreinu, það vill eðlilega, að börn sín kynnist þeim sem allra síðast. Auðvitað er þetta jafn mikil fjarstæða og ást maurapúkans á gullinu. Peningar eru í eðli sínu hvorki góðir né illir, heldur einfald- lega gjaldmiðill, sem bæði getur orðið til ills og góðs, allt eftir því hvernig á er haldið. En þó að einhver vildi sporna við því, að barn hans kæmist í kynni við peninga, þá væri slíkt vonlaust með öllu. Þess vegna er sú leið sjálfsögð að reyna heldur að temja því eðlilega umgengni við þennan hversdagslega og bráðnauðsynlega hlut, og það frá mjög ungum aldri. Með einum eða öðrum hætti þarf að veita hverju barni tæki- færi til að ráðstafa eigin fé og læra af reynslunni. Tillit til félaganna. Hins vegar ætti barn ekki að fá mik- ið af peningum í fyrstu — og eitt allra mikilvægasta og jafnframt vandasam- asta atriði þessara mála er það, að fjárráð hvers barns séu í sem mestu samræmi við fjárráð annarra barna, sem pað hefur mest samneyti við. í þessu efni eru það hin betur stæðu heimili, sem fyrst og fremst eiga leik- inn, og mörg þeirra eiga lof skilið fyrir aðgát sína, en hin dæmin eru því mið- ur einnig mörg. Sérstakt vandamál er í þessu tilliti, þegar barn er í vel laun- aðri atvinnu lengri eða skemmri tíma, en félagar þess eiga ekki slíkra kosta völ, — og jafnvel án tillits til þeirra fylgir þessu raunar ávallt nokkur vandi. Það er augljóst mál, að hér er þörf samvinnu heimilanna. Það virðist ærin ástæða til að ræða, hvað séu hæfileg fjárráð barna á ýmsum aldri, en þarfir þeirra fara vaxandi með aldrinum. En

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.