Heimili og skóli - 01.02.1962, Page 31

Heimili og skóli - 01.02.1962, Page 31
HEIMILI OG SKÓLI 23 Við lifum á mikilli blaða- og tíma- ritaöld, og þó að tímaritin væru ekki eins mörg fyrir 20 árum og þau eru nú, var í talsvert mikið ráðizt af einu litlu félagi, sem ekki taldi nema 30— 40 félaga, að hefja útgáfu á tímariti. Þetta hefði þó sennilega verið áhættu- laust ef um skemmtirit hefði verið að ræða, en það var meira en lítil bjart- sýni að ráðast í útgáfu á riti alvarlegs efnis, sem hafði ákveðinn boðskap að flytja varðandi eitt mál: Uppeldis- og skólamál. Jafnvel þótt það varðaði alla þjóðina. Á haustfundi Kennarafélags F.yja- fjarðar, 4.-5. október árið 1941, var samþykkt tillaga frá Hannesi J. Magnússyni þess efnis að félagið skyldi skóli 20 ára hefja útgáfu á tímariti um uppeldis- og skólamál á næsta ári. Skyldi rit þetta kom út 6 sinnurn á ári. í ársbyrjun 1942 kom svo 1. heftið út og þar með var sporið stigið. Þetta hefti var 16 blaðsíður og hélzt svo í nokkur ár, en þá var það stækkað í 24 síður og hefur haldið þeirri stærð síð- an. Á öðrum stað hér í heftinu er birt meginefni ávarps þess, sem formaður félagsins, Snorri Sigfússon, skrifaði í þetta fyrsta hefti til að fylgja því úr hlaði. Það verður því ekki endurtekið hér. En megintilgangur ritsins var í fyrsta lagi að reyna að sameina foreldra og kennara, heimili og skóla, þessa tvo sterkustu uppeldisaðila í þjóðfélaginu, um uppeldi, mótun og fræðslu barn- Hannes J. Magnússon.

x

Heimili og skóli

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.