Heimili og skóli - 01.02.1962, Side 38
30
HEIMILI OG SKÓLI
FAIT H. BALDWIN:
Segé u (Daé,
áouren
paé er oréié of seint
Ungur maður, sem ég þekkti, gekk
morgain einn t'yrir ári síðan út úr húsi
sínu og ætlaði að aka til vinnu sinnar.
Veðrið var ekki gott, hellirigning og
dimmviðri. Skyndilega sneri ungi
maðurinn við og gekk aftur inn til
konu sinnar. „Áttu ekki meira á könn-
unni?“ spurði hann glaðlega. Jú, það
var eitthvað á könnunni. Svo settust
þau við borðið og fengu sér kaffisopa
í ró og næði. Og hann sagði eitthvað á
þessa leið:
„Heyrðu, vina mín. Við höfum ekki
alltaf baðað í rósum, en ég vildi nú
samt segja þér, að ég hef verið mjög
hamingjusamur í hjónabandinu, og ég
ann þér og börnunum af heilum hug.“
Hún fylgdi honum til dyra, en liann
sagði: „Þú skalt ekki vera neitt kvíð-
og ljúfur og því gott með honum að
vinna. Allt eru þetta miklir kennara-
kostir, enda veit ég ekki annað en að
hann sé vinsæll ltæði meðal nemenda
sinna og foreldra þeirra.
Ég þakka Guðvin bæði fyrir mína
hönd og skólans alla hollustu og þegn-
skap þau ár, sem hann hefur starfað
hér við skólann og óska honum til
hamingju með afmælið. „Sælir eru
hógværir, því að þeir munu landið
erfa.“
in, ég skal aka varlega." Svo kyssti
hann konu sína að skilnaði.
Hann kom aldrei aftur. —
En það var einmitt þetta litla atvik,
sem var henni huggun og styrkur
seinna, þegar hún var orðin ein. Þessi
háttvísa og óvænta þakklætisviður-
kenning fyrir samlíf þeirra síðastliðin
fimmtán ár. Hún sagði eitt sinn við
mig:
„Það var ekk vandi hans að tala
svona við mig klukkan 9 að morgni.“
Það mun heldur ekki vera háttur
margra eiginmanna. En okkur væri
hollt að muna þetta: Segðu það, áður
en það er orðið of seint.
Ég er sannfærður um, að við eigum
alltaf að vera reiðubúnir að gefa —
allan ársins hring — sérstaklega þær
gjafir, sem keyptar eru fyrir okkar and-
lega gull. Sérhver maður — karl eða
kona — getur alltaf gefið eitthvað af
sjálfum sér. Hann getur gefið hlýju,
von og hugrekki. Hver maður getur
boðið barm sinn til að gráta við, og
eru ekki alltaf einhverjir, sem eru
þreyttir, sjúkir eða hryggir?
Hver einasti maður þarf á von að
halda, og hann hefur not fyrir kynstrin
öll af kærleika. Og þetta er allt svo
ósköp einfalt. Taktu bara símatólið
þitt og hringdu: „Ég hef hugsað svo
mikið um þig.“ Það má líka skrifa
þetta: „Það er svo óttalega langt síðan
H. J. M.