Heimili og skóli - 01.02.1964, Qupperneq 8

Heimili og skóli - 01.02.1964, Qupperneq 8
Fátt er nú um meira talað á þessum síðustu tímum en niðurstöð- ur vísindanna um skaðsemi sígarettureykinga. Það er því deginum Ijósara að hættan af sígarettureykingum er nú einhver mesti voði, sem vofir yfir börnum okkar og æskufólki. Það er nú staðreynd, að sígarettureykingar færast alltaf neðar og neðar í raðir hinna ungu og nýjustu rannsóknir á þessu hér á landi, eða nánar tiltekið í Reykjavík, sýna, að fjöldi barna og unglinga er farinn að reykja meira og minna. Það þýðir að hætta er á lungnakrabba um fertugsaldur eða jafnvel fyrr. Þegar þess er gætt, hvað reykingar foreldra eru orðnar almenn- ar, er sjáanlegt, að hér stöndum við frammi fyrir hinu mesta vanda- máli. Það er vitað, að það er mjög erfitt fyrir þá að hætta reykingum, sem hafa vanið sig á það, en ég trúi því aldrei, að það sé ekki hægt, ef vilji er fyrir hendi. Hvað er við öðru að búast en börnin læri að reykja, þegar báð- ir foreldrarnir gera það? Og jafnvel þótt það sé ekki nema annað foreldrið. Fordæmið hvetur til eftirbreytni fyrr eða síðar, ef ekki á barnsaldri, þá á unglingsaldri. Á slíkum heimilum liggja sígarettur oft á glámbekk svo að mjög auðvelt er fyrir bömin að ná í þær. Böm eru forvitin, og þá er oft skammt til þess að þau fari að taka hálf- reykta sígarettu eða kveikja sér í heilli. Þá ættu foreldrar að leggja með öllu niður þann ósið að senda böm sín í búðir til sígarettukaupa, enda er það bannað með lögum. Það eru mörg dæmi til þess, að böm hafa notfœrt sér þetta. Heimilið er grundvöllur þjóðfélagsins, ef sá grundvöllur er veik- ur, verður allt þjóðfélagið veikt. Gamalt spakmæli segir, að peningamir séu vondir húsbændur, en góðir þjónar. Ég er hræddur um að peningarnir séu farnir að stjórna þjóðinni nú. Á síðustu tímum hefur verið geysileg eftirspurn eftir vinnuafli á flestum sviðum. Fjöldi mœðra hefur ekki staðist þessa 2 HEIMILI OG SKÓLI

x

Heimili og skóli

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.