Heimili og skóli - 01.02.1964, Qupperneq 23

Heimili og skóli - 01.02.1964, Qupperneq 23
Eg n ftrettfln nrn dóttur EFTIR JESSYGA RUSSELL GAVER. Áður enn Anna náði hinum í senn kvíð- vænlega og eftirþráða unglingsaldri, neitaði ég ákveðið að trúa öllum þeim sögurn, sem aðrar mæður sögðu mér um það, hvernig 13—14 ára stúlkurnar þeirra umhverfðust frá degi til dags, jafnvel frá einni mínútunni til annarrar. Og nú var Anna orðin 13 ára, og nú höfum við, foreldrar hennar síðastliðið ár orðið á- horfendur að þessum hreytingum og með undrandi augum horft á allar þessar hreyti- legu myndir á hinu litla leiksviði heimilis- lífsins. Til allrar guðs hamingju koma þó stundir og þær ófáar, sem áhyggjufull móðir finnur frið í hjarta sínu. Þær stundir lifir hún einna helzt um háttatímann, þegar allar hömlur hrynja og engin reiði og engar særðar tilfinningar skilja okkur að. Við slíkt kvöldrabb við rúmstokkinn fer hún helzt að ræða um, hvað hún ætli að verða, þegar hún hefur lokið skólanáminu. „Heldurðu ekki, að það sé möguleiki á, að ég geti lært blindraskrift, mamma,” spurði hún á einni slíkri rabbstundu. „Blindraskrift? Hvers vegna að læra blindraskrift?” „Jú, mamma, síðastliðið ár hef ég leikið eins konar leiðsöguhund fyrir Tom í skólanum okkar, þú veist fyrir hlinda drenginn, sem hefur ritvél með sérstöku blindraletri.” Rödd hennar er orðin mild og hlý. „Ef ég hefði kunnað blindraskrift, hefði ég getað skrifað allt mögulegt fyrir hann og hjálpað honum þannig heilmikið við námið.” Það læddust tár fram í augu mín og einhver kökkur sat fastur í hálsinum. Já, táningarnir okkar eru breytilegir eins og veður og vindar. Hugsið ykkur, þessi hugsandi stúlka er sú sama, sem þeytist um húsið og eyðir tímanum í allskonar heimskupör, sem oft eru í þann veginn að koma foreldrum hennar til að sturlast. Þetta er sú sama Anna, sem þvaðrar tímunum saman í símann, sem les bækur og hlöð á meðan hún er í baði, og kemur svo upp úr baðkerinu með óþvegna hand- leggi, háls og eyru. Þessi blíðlynda stúlka getur orðið að hinum verzta harðstjóra og æpir á mig, að ég vilji gera henni til skammar, ef ég fer fram á að hún klæði sig hlýlega í frosti og kulda, en láti nælon- sokka og háhælaða skó eiga sig í slíku veðurlagi. „Jú,“ segi ég alvarlega, „ég er viss um að þeir á blindraskólanum eða einhverjir aðrir myndu hj álpa þér til að læra blindra- skrift. En gæturðu þá hugsað þér að leggja það alveg fyrir þig, Anna?” Það rifjast nú upp fyrir mér, að Anna hefur ^lltaf komið fram, sem vemdarvættur og leiðtogi allra minnstu barnanna í göt- unni. Hún hafði til dæmis með lítilli fyrir- höfn kennt lítilli fimm ára telpu að renna sér á skautum aðeins á tveimur tímum, og svo hafði hún tilkynnt það dag einn, að hún ætlaði ekki að giftast fyrr en ég er orðin nógu gömul til að tolla heima og HEIMILI OG SKÓLI 17

x

Heimili og skóli

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.