Heimili og skóli - 01.02.1964, Qupperneq 12

Heimili og skóli - 01.02.1964, Qupperneq 12
ur, ósj álfstæöur og einmana (uppgjöf), en með hræðslu sinni þröngvar hann sínum nánustu til að þjóna sér, dekra við sig, gangast undir harðstjórn sjúkdómsins (hefnd, uppreisn). Þetta er þá í mjög samandregnu máli nokkur helztu atriðin, sem rétt er að festa í minni varðandi hugsýkina. Og er bersýni- legt, að hún er býsna fjölskrúðug. Hún getur komið fram í hinum margvíslegustu myndum, og eru nokkrar hinna algengustu greindar sundur í undirflokka. En ekki er þörf á að rekja það nánar hér, enda skipt- ir sú aðgreining ekki ýkja miklu máli, bæði vegna þess, að sjaldnast gætir einnar ákveð- innar tegundar eingöngu hjá sama sjúkl- ingi heldur blandast jafnaðarlega nokkur form saman og eins vegna hins, að grund- vallarbygging hugsýkinnar er mjög svipuð í öllum tilvikum. Þar ræðir um þróun með nokkurn veginn einhliða rás. Hugsýkin er hámark þeirrar þróunar. Þá eru hinir sál- rænu árekstrar orðnir að bagalegri mein- semd, sem litlar líkur eru til að breytist eða lagist hj álparlaust. Að vísu eru á þessu undantekningar, einkum hvað unglinga varðar. Þá kemur stöku sinnum fyrir, að óþægileg hugsýkiseinkenni blossa upp um stundarsakir, en hjaðna niður aftur af sjálfsdáðun. En þetta breytir þó engu um það, að þegar sýnt er að hverju stefnir hjá börnum, er nauðsynlegt að bregða fljótt við og veita viðeigandi lækningu. Og skal nú vikið lítið eitt að þeirri hlið málsins. Við fáa sjúkdóma hefur verið reynt að beita jafnmörgum lækningaaðferðum og við hugsýkina. En reynslan hefur sýnt, að einungis ein aðferð kemur að verulegu haldi: sállœkning (psychotherapi). í þeirri. lækningu er allt kapp lagt á að kalla fram hina innri veröld barnsins. Svo gott traust þarf að skapast milli sjúklings og læknanda, að barnið geti látið hugarflug sitt koma greinilega fram í frásögnirm og leikjiun. Oftast tekur nokkurn tíma að skapa þann- ig lagað traust, en þegar það er fengið, gengur lækningin venjulega snurðulítið. Smám saman fær læknandinn dýpri innsýn í vandamál bamsins og getur því miðlað því betri skilningi á sjálfu sér og ástandi sínu eftir því sem við á. Þegar þessu starfi hefur miðað nokkuð áleiðis, fer hegðun bamsins að breytast. Það losnar um hina rígskorðuðu byggingu hugsýkinnar og hún víkur fyrir geðrænu hrapi og uppreisnar- gjarnri hegðun, — unz allt færist að lokum í eðlilegt horf, sé vel á haldið og nægur tími til umráða. Sállækningar hugsýkissjúklinga eru víð* ast hvar meginverkefni geðverndarstöðva. Fæstir þeirra era svo illa haldnir, að þeir þarfnist vistar á sjúkrahúsi. Bezt fer á, að þeir dveljist áfram í heimahúsum við ó* breyttar ytri aðstæður, en sæki lækninga* stundir á stofnunina einu sinni eða tvisvar í viku. Sállækning er alltaf mjög tímafrek, en mjög er þó mismunandi hversu langan tíma hún tekur, getur það verið frá nokkr- um mánuðum upp í nokkur ár, allt eftir því hvernig veikluninni er háttað og hvem- ig aðstæður eru til lækningar. Þess hefur verið getið um hegðunarvand- kvæði og geðrænan vanþroska, að þau beri að skoða framar öðru sem andsvar barnsins við ytri erfiðleikum. Gildir þetta •vitaskuld engu síður um hugsýkina, sem hér hefur verið skilin sem áframhald og sjúklegri útfærsla þessarra fyrmefndu trufl- ana. Með þessu er í rauninni litið svo á, að hugsýki sé ekki meðfæddur veikleikí (sbr. Annell: Miljöskadesyndrom), endat þótt enginn dragi í efa, að meðfæddur við- 6 HEIMILI OG SKÓLI

x

Heimili og skóli

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.