Heimili og skóli - 01.02.1964, Page 10

Heimili og skóli - 01.02.1964, Page 10
ÞÆTIIR IIN SIGURJÓN BJÖRNSSON, SÁLFRÆÐINGUR: sálsýkisfrœði barna IV. Hugsýki Miðað við þá tvo flokka sálrænna erf- iðleika, sem hér hafa verið nefndir (hegð- unarvandkvæði, geðrænn vanþroski), er hugsýkin — eða taugaveiklunin eins og hún er oftar nefnd — alvarlegust. Hún táknar áframhaldandi þróun innri baráttu í ákveðna stefnu (aðrar þróunarstefnur eru og til eins og e. t. v. verður síðar getið). Þessi þróun í átt til hugsýkinnar er stundum hægfara, einstöku sinnum stöðv- ast hún á miðri leið, en í sumum tilvikum endar hún í hugsýki, sem ekki hverfur lækn- ingarlaust. Af þessum ferli leiðir,' að iðu- lega sjáum við börn, sem eru á eins konar millistigi milli fyrrnefndra tveggja trufl- ana og hugsýki hins vegar. Þau verða því naumast með réttu talin til neins hinna þriggja flokka og höfum við því kosið að greina þau sér í lagi undir heitinu psychon- eurosis incipiens (þ. e. byrjandi hugsýki). Hér verður nú litið á hugsýki eins og hún birtist, þegar hún héfur tekið á sig endanlega mynd. Sameiginlegt einkenni á öllum þorra hug- sýkissjúklinga er, að þeir lifa meira í innri veröld sinni en umheiminum. Þeir hafa að nokkru marki losnað úr tengslum við raun- 4 HEIMILI OG SKÓLI veruleikann. Hjá bömum kemur þetta oft fram sem feimni, hlédrægni, einangnmar- kennd, áhugaleysi og sljóleiki gagnvart því, sem gerist í kringum þau. Þau eru oft eins og utan við sig, enda oft ásökuð fyrir hugs- unarleysi og sauðarhátt. Oftast eiga þau fáa félaga, stundum alls enga. Þau em gjam- an úthaldslítil og þreytast fljótar en eðli- legt getur talizt. Fas þeirra er oftast þving- að og ófrj álsmannlegt. Mörg þeirra bera sig illa, ganga hokin og hengslaleg. Þessi lýsing breytir allmjög um svip, þeg- ar litið er inn í hugarheim sjúklinganna. Hann er oft álíka fj ölskrúðugur og grósku- mikill og fátæklegt er hið ytra, einkum hjá þeim, sem vel eru greindir. Mörg þessarra barna hneigjast mjög til draumlyndis og eiga sér marga og mikla vökudrauma, þar sem heitar og sterkar tilfinningar gera vart við sig gagnvart ímynduðum persónum og við tilbúnar aðstæður. Iðulega fær þetta mikla hugarflug næringu við lestur bóka og eru sum þessarra barna hinir mestu lestr- arhestar, gleypa hvaða efni, sem þau ná í og sökkva sér af alhug niður í það, jafnveJ megnið af þeim tíma, sem þau eru vakandi. Þó að tengslin við umheiminn hafi dofní-

x

Heimili og skóli

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.