Heimili og skóli - 01.02.1964, Síða 13

Heimili og skóli - 01.02.1964, Síða 13
námsþróttur einstaklinga viS andlegum og líkamlegum sjúkleika sá mismunandi mik- ill. En af þessari skoðun leiSir, aS orsakir hugsýkinnar eru upphaflega ekki í barn- inu sjálfu heldur í umhverfi þess. Getur þar margt komiS til greina, áföll andleg eSa líkamleg (trauma), andstæS kjör (mis- eria), sjúkleiki foreldra o. m. fl. Stundum er hugsýki barnsins einungis einn þráSur í flóknu og viSamiklu sjúklegu fjölskyldu- mynstri (sem veriS getur ættlægt og fylgt fjölskyldum í marga ættliSi) og hafa sum- ir fræSimenn talaS um „family neurosis“ í því sambandi. En af öllu þessu leiSir, aS langoftast er æskilegt eSa nauSsynlegt aS veita foreldr- um barnsins mikla aSstoS. Þeir þurfa þeirr- ar aSstoSar meS til þess aS skilja betur, hvaS gerist í lækningu barnsins, til þess aS sætta sig viS þá breytingu, sem óhjákvæmi- lega verSur á persónuleika þess aS lokinni VelheppnaSri lækningu, til þess aS geta lag- fært þau atriSi í umhverfi barnsins, sem valdiS hafa og viShaldiS sjúkdómi þess, — og síSast en ekki sízt til þess aS fá ráðna bót á persónulegum vandamálum og óheil- brigSum séreinkennum, sem skyggt geta á farsæld þeirra, hindraS eSlilegt heimilislíf og heillaríkt uppeldi barnanna. AUÐUGUR viðskiptajöfur einn sagði við einn af vinum sínum: „Eg er nærri 65 ára og á hálfa aðra milljón krónur. Nú hef ég orð'ið ástfanginn í yndislegri stúlku, sem ekki er nema 19 ára. Heldur þú ekki að ég hafi meiri möguleika á að hún taki mér ef ég segi henni að ég sé fimmtugur?" „Ef ég á að vera hreinskilinn við þig, held ég að þú hefðir mesta möguleika, ef þú segðir henni að þú værir 80 ára.“ * Prestur nokkur stóð þrjá smástráka að því að skrópa úr skólanum. „Heyrið þið drengir mínir,“ sagði hann í föðurlegum róm: „Langar ykkur ekki til að komast inn í himnaríki?“ „Jú“, svöruðu tveir drengimir einum rómi, en sá þriðji sagði: „Nei, þakka þér fyrir.“ „Á ég að trúa því, að þú viljir ekki komast í himnaríki, þegar þú deyrð?“ „Þegar ég dey!“ svaraði drengurinn. „Jú, auðvitað. Ég hélt, að þú værir að safna einhverjum saman, sem gætu farið nú, þegar.“ ❖ YNGSTA lærlingnum á bifreiðavinnustofu einni var fengið það verk að taka beiglaða hjólhlíf af bíl einum. Hann stritaði lengi við að ná hlífinni af, en að lokum gafst hann upp og sagði við meistara sinn: „Eg get þetta ekki“. En meistarinn lét sér fátt um finnast og mælti: „Mér var einu sinni á unga aldri fengið erfitt verkefni í hend- ur, þegar ég var lærlingur, og ég sagði alveg það sama við húsbónda minn: „Ég get þetta ekki.“ En veiztu hverju hann svaraði? „Ungi maður,“ sagði hann. „Hér á verkstæði mínu er aðeins viðurkennt tvennskonar ,ég get ekki‘. Ef þú getur ekki lokið þessu verki þá getur þú ekki verið hér.“ Hjólhlífin var komin af eftir stutta stund. HEIMILI OG SKÓLI 7

x

Heimili og skóli

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.