Heimili og skóli - 01.04.1964, Side 12

Heimili og skóli - 01.04.1964, Side 12
VALGARÐUR HARALDSSON: Sitt af hverju úr Bandaríkjaför Það var að kvöldi þess 29. ágúst síðast- liðinn, að við fimm íslenzkir kennarar lögð- um upp frá Keflavíkurflugvelli í 6 mánaða námsför um Bandaríkin. Farkostur okkar var Loftleiðavélin Þorfinnur Karlsefni. Næstum eitt þúsund árum áður hafði norrænn víkingur, berandi sama nafn og vélin, reynt landnám í Ameríku, en hrökkl- ast þaðan skjótt, undan ofríki innfæddra skrælingja, Rauðskinnanna. Nú skyldi landtakan heppnast, enda fs- lendingarnir í þetta sinn gestir bandarísku þjóðarinnar, og áttu þeir að kynna sér fræðslu- og skólamál þarlendra. Eina vopn okkar í baráttunni við inn- fædda, var gul bók, sem meðal þátttakenda í námsförinni gekk almennt undir nafninu „biblían“. Bók þessi er upphaflega samin á fræðsluskrifstofu Bandaríkjanna, en ár- lega endurskoðuð með dyggilegri aðstoð fyrri þátttakenda og síðan send öllum ný- liðum til aflestrar, uppfræðslu og sáluhjálp- ar í komandi viðureign við landsmenn. Sem sýnishorn úr bókinni gulu, má nefna eftirfarandi dæmi: „Sé karlmaður í fylgd með kvenmanni á götu úti, er það venjan, að karlmaðurinn gangi götumegin á gangstéttinni. Innan- húss, eiga karlmenn að taka ofan höfuðföt sín, svo og í lyftum. Gleymdu ekki að taka yfirfrakkann með þér, því að allra veðra er von.“ Þá var og getið hverjum og hverj- um ekki, við skyldum rétta þjórfé, og menn varaðir við að vera um of örlátir í þeim efnum. Og jafnvel í því tilfelli, ef þátttak- andi biði algeran ósigur í baráttunni við landsmenn, skyldu jarðneskar leifar hans sendar heim, honum að kostnaðarlausu. Og þó, sendingarkostnaður var takmark- aður við 1000 dali. Sem sagt, gula bókin lét sér ekkert óvið- komandi, hvorki mannlegt né ómannlegt. 32 HEIMILI OG SKÓLI

x

Heimili og skóli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.