Heimili og skóli - 01.04.1964, Side 28
■
VerSandi listafólk.
HANN var níu ára og átti að fara á dans-
skóla. Aður en hann fór í fyrsta skipti
minnti móðir hans hann á, að hann mætti
nú til með að dansa við eina ákveðna
telpu, sem var ákaflega feit. En móðurinni
til mikillar furðu tók hann orð hennar svo
bókstafiega, að hann virtist ekki sjá neina
aðra telpu en þessa feitu hnyðru. Þegar
þau komu heim, hafði móðir hans orð á
því, að hann hefði nú átt að dansa við
fleiri telpur.
„Já — en mamma,“ sagði hann. „Mér
geðjast svo vel að henni. Það er eins og
maður sé'að aka dráttarvé1."
Vegna verulegra hækkana ó öllum lið-
um útgófunnar, hækkar óskriftarverð
Heimilis og skóla í 60 00 krónur. Það
lóðist að geta þessa í 1. hefti, en betra
er seint en aldrei. Þrótt fyrir þessa hækk-
un mun Hcimili og skóli vera eitt ódýr-
osta tímarit landsins.
Utgefendur.
Vegna lasleika ritstjórans kemur þetta
hefti seinna út en til var ætlazt og eru
kaupendur beðnir að afsaka það.
48 HEIMILI OG SKOLI