Heimili og skóli - 01.04.1964, Blaðsíða 19
Góðir samstarfsmenn. Kæru börn.
Söngvasvanur Eyjafjarðar er þagnaður.
Söngur hans mun aöeins lifa í Fagraskógi
minninganna. Ljóðabækurnar hans dásam-
legu verða ekki fleiri.
Davíð skáld Stefánsson er í hugum okkar
allra þessa dagana. Með þessari minningar-
samkomu viljum við reyna að gefa ykkur,
börnin góð, minningu um fráfall þjóð-
skáldsins okkar. Og það vill svo vel til, að
með hjálp tækninnar getum við heyrt rödd
hans, þar sem hann fer með nokkur kvæði
sín. Hann hefur notiö meiri ástsældar
meðal þjóðarinnar fyrir ljóð sín en nokk-
urt skáld annaö.
Davíð Stefánsson er fæddur 21. janúar
1895 í Fagraskógi við Eyjafjörð og var á
sjötugasta aldursári er hann lézt þann 1.
marz s.l. Með fyrstu ljóðabók sinni ,sSvört-
um fjöörum“ söng hann sig þegar inn í
hjörtu þjóöarinnar, og með hverri nýrri
ljóðabók jók hann hróður sinn. Alls hefur
hann gefið þjóö sinni 9 ljóðabækur, án
þess að nein ellimörk séu á nokkurri þeirra.
Þótt tvær síöustu beri einkenni hins lífs-
reynda og þroskaða manns, eru þær jafn
nýjar og ferskar og hinar.
Segja má, að Davíð og Stefán frá Hvíta-
dal hafi komið með nýjan, léttan tón inn í
íslenzka ljóöagerö. Þeir urðu brautryðj-
endur í því efni. Og grundvöllur þessarar
nýju stefnu voru þjóðkvæðin, sem Davíö
mat ávallt mikils.
Þá hefur Davíð frá Fagraskógi ritað
HEIMILI OG SKÓLI 39'