Heimili og skóli - 01.04.1964, Qupperneq 23

Heimili og skóli - 01.04.1964, Qupperneq 23
Til þess vann hann. Og gott er heilum vagni heim afr aka. Sjálfur á ég mikið að þakka, — frábært samstarf, drengskap og hollustu. Og þeirri þökk fylgja einlægustu blessunaróskir. Börn Steinþórs Jóhannssonar og konu hans, Sigrúnar Ingimarsdóttur (þau skildu) eru tvö: Bryndís, húsmæðrakennari í Rvík og Örn, prentari á Akureyri. Þeim sendi ég einlægustu samúSarkveSju. Snorri Sigfússon. * VinarkveSja: Tímans elfur áfram streymir, ekkert stenzt viS hennar þunga — með sér hrífur háa og lága, hrausta, veika, gamla, unga. — Stundum lygn meS lágum niSi HSast hún um blómgva dali, stundum hratt meS fossafalli fleygist hún um gljúfrasali. Þannig og meS árum líSur okkar för aS víSa sænum, þar sem leikur lítil bára léttum faldi í aftanblænum — þar sem beljar brim á skerjum, brotsjór ógnar veiku fleyi, þar sem ofar bárubliki bjarmar upp af nýjum degi. í deiglunni skírist þaS gull sem er glætt, og gott skal þaS efni, er í líftaug skal spinna. Ef grunnarnir bresta er háborgum hætt. — með hugsun og starfi skal sigrana vinna. ÞaS skildir þú snemma —- viS skiljum þaS enn, — þú skreiSst ekki í felur og blést ekki í kaunin. Þeir vinna oft hljótt okkar vöskustu menn, þeim vinnunnar gleSi eru dýrustu launin. Þú fyrirleizt amlóSans ákvæSisskrift, en ótrauSur fylgdir þú vorboSans merki, þótt laun væru skömmtuS, — já skorin og klippt, þú skeyttir því lítt, en gekkst einhuga aS verki. Þú baSst ekki heiminn um hrós eSa völd, ei hræsni né smjaSur þér lágu á tungu, og því ertu fallinn meS flekklausan skjöld aS fegursta dæmiS þú gafst hinum ungu. Á hugans engi andans gróður í þínum gengnu sporum skín. Göfgra drengja er heyri ég hróður hlýt ég lengi að minnast þín! Magnús Pétursson. HEIMILI OG SKÓLI 43

x

Heimili og skóli

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.