Heimili og skóli - 01.04.1964, Síða 24
Starfsfrœðsludagur
á Akureyri
Sunnudaginn 12. apríl var haldinn fjórði
starfsfræðsludagurinn á Akureyri í Odd-
eyrarskólanum. Ólafur Gunnarsson, sál-
fræðingur, stjórnaði starfsfræðslunni, en
hún fór fram á vegum Æskulýðsheimilis
templara eins og áður. í undirbúnings-
nefnd voru: Adolf Ingimarsson, Eirík-
ur Sigurðsson, Guðmundur Magnússon,
Gústav Júlíusson og Hörður Adolfsson.
Dagana á undan flutti Ólafur Gunnars-
son erindi fyrir gagnfræðaskólann í kirkj-
unni og fyrir menntaskólann á sal og sýnd-
ar höfðu verið kvikmyndir úr atvinnulífinu
fyrir nemendur skólanna í Borgarbíó og
Oddeyrarskólanum.
Leiðbeinendur við starfsfræðsluna utan
bæjar voru sjö: Hrafnhildur Schram, flug-
freyja, Björn Th. Björnsson, listfræðingur,
Geirharður Þorsteinsson, arkitekt, Guð-
mundur Snorrason, yfirmaður flugumsjón-
ar hjá Flugfélagi Islands. Jón B. Hanni-
balsson, hagfræðingur, Ólafur Gunnarsson,
sálfræðingur og Vilhjálmur Einarsson,
kennari frá Samvinnuskólanum.
Leiðbeinendur voru alls 75 og kynntu
þeir 125 starfsgreinar og stofnanir. Nokkur
fyrirtæki og stofnanir var unglingunum
gefinn kostur á að skoða í bænum meðan á
starfsfræðslunni stóð.
Aíls komu 470 manns til að leita fræðslu.
Fræðsludeild SÍS sýndi tvö skipslíkön og
stóra mynd af skipi. Nokkrir hlutir voru
sýndir úr járniðnaðinum, þ. á m. bobbing-
ur (botnvaltra) og ný kryddhrærivél, sem
nota á við síldarsöltun.
Hér verður skýrt frá nokkrum starfs-
greinum, sem mest var spurt eftir. Nefndar
verða fyrst þær greinar, sem einkum voru
fyrir stúlkur. Hjúkrunarkona 62, flugfreyja
66, ljósmóðir 12, hárgreiðsla 39, fóstra
20, húsmæðrafræðsla 28, talsímakona 4.
Minna var spurt um iðngreinar en vænta
mátti. Hér eru þrjár þær hæstu: Húsgagna-
smíði 21, húsasmíði 13 og prentun 11.
Mikill áhugi var fyrir ýmsum greinum
háskólanáms. Læknisfræði 55, arkitektúr
35, byggingaverkfræði 25, hagfræði 25,
sálfræði 25, náttúrufræði 36, íslenzk fræði
20, stærðfræði, eðlisfræði og efnafræði 15
og efnaverkfræði 15.
Um verzlun og viðskipti, Samvinnuskól-
ann og Verzlunarskólann spurðu 90 og
kvikmyndasýningu Samvinnuskólans sáu
60.
Um sjávarútveg og fagnám tengt sjávar-
útvegi spurði 59. Um landbúnaðarstörf
spurðu 17.
Um Handíða- og myndlistaskólann og
aðrar dráttlistargreinar spurðu 46. Um tón-
list 12 og leiklist 26.
I flugmáladeildina komu alls 182. Þar
af spurðu 52 um störf flugmanna og loft-
44 HEIMILI OG SKÓLI