Heimili og skóli - 01.04.1970, Blaðsíða 27

Heimili og skóli - 01.04.1970, Blaðsíða 27
vikin á Tom litla voru farin að síga niður, og það var eins og allur litli líkaminn hans félli saman eins og hann vildi segja: „Eg veit vel hverju þú ætlar að svara.“ Og allt í einu þóttu mér húsmóðurskyldur mínar ekki vera nærri því eins mikilvægar og fyr- ir stundu, og því síður eins mikilvægar og loforðið, sem ég hafði svo oft gefið Tom, en aldrei staðið við. „Nei, ekki alveg strax.“ I rauninni þótti mér sem ég bjargaði mér sæmilega í land frá þessari nýbyrjuðu setningu með því að bæta við: „Ég verð þó að hafa tíma til að fara í peysuna mína.“ Nokkrum mínútum síðar tók ég í höndina á Tom, lokaði forstofudyrunum á eftir okk- ur. . . . án þess að skilja, að ég var að opna aðrar dyr fyrir honum — já fyrir okkur háðum.... Ég var ekki alveg laus við samvizkubit, þegar við gengum gegnum garðinn okkar, sem við kölluðum, sem í raun og veru var hrópandi ákæra í líki illgresis. Þar þurfti áreiðanlega að koma til lújárn og um- hyggjusöm og ástrík hönd. Eg nam staðar til að kippa upp fífli, en. . . . nei. Tom átti að eiga þessa síðdegisstund. Ég flýtti mér á eftir honum. Þegar blómabeðunum lauk, tók við gras- flötur, sem endaði við runnastóð, en þar fyr- ir neðan lá trjástofn yfir ána. Við gengum hægt eftir trjástofninum. Tom kastaði eins og í hugsunarleysi steini út í sólglitrandi vatnið. Ég gerði ósjálfrátt hið sama. Hann var dálítið hissa á því, en það gladdi hann svo, að hann skríkti af hlátri. Þessi viðbrögð hans voru svp smitandi, að ég fór sjálf að hlægja og við vorum fyrir alvöru farin að njóta þessarar gönguferðar. Hinumegin við ána lentum við í þéttuni kjarrskógi. Hér kom Tom fram sem minn riddaralegi leiðsögumaður. „Bíddu svolít- ið,“ sagði hann. „Ég þarf að útvega þér staf.“ Hann fann mjóa grein handa mér, sem var alveg tilvalinn stafur. En um eitt hundrað metra frá okkar eigin landareign var ég komin á annarra manna land, sem ég hafði aldrei séð áður. Tom sagði í ró- andi tón, að þetta gerði ekkert til — hann þekkti þarna hverja þúfu. Stígurinn varð nú æ þrengri og lá nú í ótal hlykkjum. Tom nam staðar þar, sem stormurinn hafði feykt tré einu um koll. Þegar hann hoppaði yfir stofninn tilkynnti hann hátíðlega: „Við Jonni sáum björn hérna í gær....“ Ég brosti auðvitað eins og sæmdi fullorðinni konu, en í því brosi fólst eitthvað á þessa leið: „Mikill dæmalaus þvættingur er þetta!“ En um leið hvarf hið tindrandi blik úr augum Toms. Hann varð niðurlútur, þeg- ar hann sneri sér við og gekk áleiðis inn á milli runnanna. En langt — langt burtu — ekki mælt í kílómetrum heldur í árum —- barst með vindblænum rödd lítillar stúlku, sem sagði við pabba sinn: „Pabbi það hljóta að vera Indíánar hér í skóginum. Ég fann örvarodd með þornuðu blóði á.“ Hún heyrði líka aðra rödd, djúpa og undrandi, sem svaraði: „Jæja, þá er betra fyrir okkur að gæta okkar vel. . . . “ Ég hljóp til að ná Tom aftur og sagði blásandi af mæði: „Ég þori að veðja, að það er björn hérna í skóginum. Við verðum að gæta vel að okkur. Þessi orð liöfðu undursamlegan töframátt. Augu Toms ljómuðu og hann varð aftur beinn í bakinu með upprétt höfuð. Þessi fáu orð mín höfðu stækkað hann allan. Það var þá tekið eitthvert mark á honum. Það hafði 47

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.