Heimili og skóli - 01.04.1970, Blaðsíða 19

Heimili og skóli - 01.04.1970, Blaðsíða 19
kvæðan hátt. Oft og tíðum verða félags- málastofnanirnar einu aðilarnir, sem reyna að hjálpa þessu fólki en stundum liggur leiðin líka áfram til sakamálastofnananna. Þetta er dökk en því miður raunhæf mynd af örlögum margra innflytjenda, ef ekki tekst að finna ráð til að minnka vandann. Eg ætla mér ekki þá dul, að ég geti bent á leiðir sem örguglega dugi til að bjarga hverju því barni, sem hefur hlotið það dap- urlega hlutskipti að alast upp án eiginlegs móðurmáls eða föðurlands. Það sem ég gæti helzt hugsað mér til úrbóta eru kennarar, sem hafa vald á báðum málunum og þó einkum félagsráðgjafar, sem kunna bæði málin og þekkja bæði vinnumarkað og skóla í báðum löndunum. Það sem ég tel einna nauðsynlegast er að hjálpa fjölskyldunum að gera sér ljóst hvert þær ætla að stefna. Þær leiðir sem mér virð- ast færastar eru einkurn tvær. I fyrsta lagi er hugsanlegt að foreldrarnir hverfi heim til föðurlands síns meðan börnin eru nógu lítil til þess að geta lært móðurmálið á eðlileg- um tíma. Hin leiðin er að dvelja nógu lengi í nýja landinu svo mál þess lands verði aðal- mál barnanna. Mér er fullkomlega ljóst að þetta getur valdið tilfinningalegum örðug- leikum, en þá örðugleika verður hver fjöl- skylda fyrir sig að glíma við og yfirvöld landanna verða að aðstoða fjölskyldurnar eftir mætti. Vandamálið er alþjóðlegt, en vegna norræna vinnumarkaðarins verður aðstaðan önnur innan Norðurlandanna en utan þeirra. Þessi endursagða grein er ekki skrifuð með íslenzka lesendur í huga, en við nánari íhugun fannst mér samt, að hún gæti orðið þeim gagnlegt umhugsunarefni. Aðstaða íslenzkra barna verður vitanlega aldrei hin sama og þeirra finnsku, vegna þess, að íslenzkum börnum reynist mun auð- veldara að læra sænsku en finnskum börn- um. Hinsvegar verða íslenzkir foreldrar að gera sér grein fyrir því, að mikill munur er á skólakerfi Islands og Svíþjóðar. Sem eitt dæmi um mismunandi skólakerfi landanna má nefna að framvegis hefst enskunám í 3ja bekk barnaskóla í Svíþjóð og tungumála- nám er bæði hvað kennslubækur og kennslu- tæki snertir fullkomið. Kennsla í ýmsum fræðum, ekki sízt félagslegum, er mikil í Svíþjóð en nánast óþekkt á Islandi. Þetta gerir það að verkum, að aldur barnsins seg- ir ekki nema að nokkru leyti til um það hvað liægt er að ætlast til, að það kunni. Væntan- lega gildir hið sama um íslenzk börn og finnsk að þau væru betur sett, ef þau hæfu nám í leikskóla eða fyrsta bekk barnaskóla heldur en ef þau hefja það síðar. I umræðum íslenzkra blaða varðandi dvöl í Svíþjóð hafa mörg veigamikil atriði ekki komið í 1 jós. Eg skal ekki að sinni ræða þessi mál frekar, en svo mikið þori ég að segja a ðlokum, að bezt er að hugsa sig vand- lega um áður en maður flytur í annað land, ef börn eiga að vera með í förinni. TIL GAMANS Séía William Rodda, prestur í Salisbur/, hefur leyft sóknarbörnum sínum að spila einstöku sinn- um „Bingó“ í kirkjunni. Hann hefur aðeins gert þá kröfu, að þegar einhver vinnur, hrópi hann ekki „bingó“ heldur amen. Þessi auglýsing birtist nýlega í Lundúnablað- inu Daily Express: „Grænn páfagaukur, sem get- ur talað, er til sölu við lágu verði vegna þess að hann og eigandinn hafa ekki lengur sömu stjórn- málaskcðanir." HEIMILI OG SKOLI 39

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.