Heimili og skóli - 01.04.1970, Blaðsíða 11

Heimili og skóli - 01.04.1970, Blaðsíða 11
hjá æskulýðsfélögum og öðrum samtökum, eða sjálfir þátttakendur í túlkun leikhús- verka. Þá er einnig deild, sem fjallar um norræn mál og menningu. Þessi deild er fyrst og fremst ætluð þeim, sem þegar hafa numið við lýðháskólann og lokið þaðan námi í al- mennum lesgreinum. I þessari deild rnega einnig vera stúdentar og verðandi kennarar. Deildin starfar í námskeiðum og með val- greinum. Að lokum er svo deild um almenn lýðhá- skólaefni. Þar er um að ræða námskeið, sem felur í sér kjarna þeirra þátta, er mikilvæg- astir teljast og áður numdir í skólanum. Nám í þessari deild jafngildir síðara ári í lýðháskóla. Margir spyrja: „Hver eru réttindi lýðhá- skólanema?“ Þessu er fljótsvarað. Próf frá lýðháskóla er í sænska ríkiskerfinu ekki tal- ið gefa nein réttindi. Þó má hiklaust telja, að hann sé engu lakari en hliðstæður ungl- ingaskóli og af sumum talinn mun betri. Því hafa ummæli skólastjóra þessa skóla eða annarra háttsettra starfsmanna skólans, varðandi nemendur, nokkurt gildi og hafa oft verið talin fullnægjandi gögn fyrir þá, sem lokið hafa prófum frá skólanum og hyggjast halda áfram námi við aðra skóla. Nú er töluvert talað um það í Svíþjóð, að beztu nemendur lýðháskólanna ættu að fá leyfi til þess að fara beint úr þeim og inn í vissar deildir háskólanna, án þess að fara í menntaskóla. Dagskrá skólastjóramótsins. Þegar farið var frá íslandi, lá fyrir dag- skrá varðandi dvölina í Svíþjóð. Þar var gert ráð fyrir að skólastjórar sæktu fyrir- lestra í skólanum fram að hádegi, en færu Lýðháskólinn í Kungalv (jyrirlestrarsalur). í skoðunar- og kynnisferðir eftir hádegi. Reyndu að kynnast sem flestum greinum í sænskum skóla- og uppeldismálum og færu því í nærliggjandi borgir þar sem skóla- starfið væri fjölbreyttara en í Kungálv. Réttincli lýðháskólanema. Áður en ég segi frá ferðum þessum og kynnum okkar af sænskum skólum og skóla- starfi, þá ætla ég í stuttu máli að gera grein fyrir sænska skólakerfinu. Mun ég að nokkru leyti styðjast við erindi Magnúsar Gíslasonar kennara í Kungálv, en í upphafi mótsins flutti hann um þetta efni ágætt er- indi. Skólaskylda í Svíþjóð. Skólaskylda í Svíþjóð hófst árið 1892 og hefur haldizt óslitið frá þeim tíma. Nú er verið að semja nýja fræðslulöggjöf, sem á að koma til framkvæmda árið 1972. I sænsk- um skólum hefur verið lögð mikil áherzla á að nemendurnir væru virkir í störfum og að- löguðust samfélaginu, enda sé það skylda skólanna, á hverjum tíma, að leitast við að koma öllum nemendum til nokkurs þroska. HEIMILI OG SKOLI 31

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.