Heimili og skóli - 01.04.1970, Blaðsíða 13

Heimili og skóli - 01.04.1970, Blaðsíða 13
2. Félagslegt sjónarmið. Þótt leiðinlegt sé frá að segja, þá eru 6 ára börn að verða félagslegt vandamál. Þetta á sérstaklega við um þéttbýli og vegna síaukinnar hlutdeildar giftra kvenna í athafnalífinu, eins og áður hefur verið drepið á. Þetta leiðir af sér auk- inn þrýsting til að koma börnunum í skóla og fyrr en almennar reglur ákveða. 3. Þjóðhagslegt sjónarmið. Sumir halda því fram, að börnin kæmu fyrr út í athafna- lífið, ef skólagangan hæfist fyrr. Eru menn þó ekki á eitt sáttir um það, hvort slíkt væri æskilegt. Margir telja, að þar sé um þroska að ræða, sem þarf sinn tíma og því sé ekki um að ræða að stytta leiktímabil barnsins, heldur nær að skapa barninu tíma til þroska í félagslegu starfi í formi forskóla eða jafn- vel innan vébanda leikskólanna. Hugsanlegt væri líka að stofna til þess sérstaka leik- skóla. Málið er í rannsókn og á tilrauna- stigi, en sá hugsunarháttur er algengur, að hið opinbera geti ekki öllu lengur vikið sér undan að leysa vandamál 6 ára barna á við- unandi hátt. Telja margir, að leggja beri mikla áherzlu á að skapa börnunum betri félagsleg þroskaskilyrði heldur en víða eru í þéttbýlinu. Skólanámið. Á barnafræðslustiginu er skólanáminu skipt niður í þrjú stig. Þau eru þessi: 1. Smábarnastig (7—9 ára börn). 2. Barnastig (10—12árabörn). 3. Unglingastig (13—-15 ára börn). Á smábarna- og barnastiginu starfa bekkjakennarar, en að jafnaði sérkennarar á unglingastiginu. Á smábarnastiginu eru engin skörp skil milli námsgreina og þær grípa oft hver inn í aðra. Á barnastiginu eru mörkin skarpari. Nemendur lýðháskólans. Þar hefst enskunám við 10 ára aldur og á komandi hausti eiga börn í 3. bekkjum að fá enskukennslu. Enskukennsla þessi fer fram í leikformi, en ekki eftir bókum og kemur það meðal annars til af því, að á þess- um aldri skilja börnin ekki málfræðihugtök. Við 13 ára aldur (7. bekk) bætast svo við nokkrar námsgreinar og eru sumar bundnar ákveðnu valgreinakerfi, en það hefur orðið nokkuð þungt í skauti fyrir sænska skóla og er talið að vel komi til greina að binda það í fastari kjarna. I þessum 7. bekk eru 5 mis- munandi valgreinakjarnar, en þegar komið er í 8. bekk geta þeir orðið allt að 9. Ensku og stærðfræði er ætíð þannig skipt, að nem- endum er gefinn kostur á að velja um léttari eða þyngri leið í náminu, sá möguleiki er einnig fyrir hendi í þýzku og frönsku. Þeir sem ætla sér áfram í menntaskóla taka að jafnaði þyngri leiðina, sem talið er heppi- legra. Starfsfræðsla. Starfsfræðsla er skyldugrein í 8. bekk og er kennd í þriggja vikna námskeiðum. Börn- in velja sér þá atvinnugrein og fara út til hins almenna borgara. Sumir gerast þá t. d. aðstoðarsveinar hjá rakara, bakara eða úr- smið, en aðrir fara um tíma á bóndabæi og HEIMILI OG SKOLI 33

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.