Heimili og skóli


Heimili og skóli - 01.10.1987, Side 5

Heimili og skóli - 01.10.1987, Side 5
Bannað að læra * - Garðar Amason - í þessu stutta spjalli verð ég að sjálfsögðu að tala út ffá minni reynslu. Eg byrjaði í Lundar- skóla í svokölluðum núllbekk eða forskóla. Þegar ég var bú- inn að læra námsefni vetrar- ins, þ.e. að þekkja sundur „rauða” og „græna” stafi var ég settur út í hom og þar máti ég lesa og lita að vild. Ég veit vel að forskóli er nokkurs kon- ar aðlögunartími fyrir skóla- gönguna og ekki ætlast til að „nemendur” læri nein ósköp, sem er mjög eðlilegt og gott út af fyrir sig ef þetta sama hefði ekki gengið upp næstu bekki líka. Skólinn var að mestu leyti geymsla, lærdómur var lítill og föndur því meira, og það var ekki eingöngu í fyrstu bekkjunum heldur alveg upp í sjötta bekk. Stökk milli bekkja voru svo að segja engin hvað námsefni varðar. Geymsluhlutvekið gekk jafn- vel svo langt að þeim sem áttu ekki í neinum stórvandræðum með námsefnið var bannað að læra Það finnst mér há- markið. Stærðffæðibækurnar, svo dæmi sé tekið, voru fönd- ur, sumir nemendur gátu reiknað 10-20 blaðsíður fram úr bekknum á nokkrum dög- um án nokkurrar heimavinnu né aðstoðar. Þá var settur kvóti á það sem mátti gera og þeir sem gerðu of mikið máttu horfa upp á kennarann stroka út heilu blaðsíðurnar í vinnu- bókunum. Þetta getur vart tal- ist hvetjandi kennsla. Fyrsta stökkið var að fara úr sjötta bekk í sjöunda, þar sem ég þurfti þá að skipta um skóla. Stökk hvað námsefni og kröfur varðar var sáralítið nema hvað hætt var að föndra. Meginmunurinn var að fá kennara fyrir hvert fag og vera í nýjum bekk í nýjum skóla. Þá er ég kominn að þeim bekk þar sem pottur er illa brotinn, áttunda bekk. Nýtt námsefni í áttunda bekk er sáralítið. Ég get fullyrt að þeir nemendur sem hafa tileinkað sér námsefni fyrri bekkja hafa ekkert með áttunda bekk að gera. Ég get fullyrt það vegna þess að ég hef reynslu af því sjálfur. Þrjár síðustu vikur sjö- unda bekkjar sótti ég ein- göngu tíma í áttunda bekk og tók próf úr þeim bekk ásamt tveim kunningjum mínum og jafnöldrum. Eg varð varla var við breytinguna, sem dæmi get ég nefnt að í íslensku var sama bók kennd í báðum bekkjum, munurinn var sá að áttundi bekkur var kominn tveim blaðsíðum lengra. í stærðfræði sýndi kennarinn mér jöfnuna prósenta • heild = hluti og sagði að þetta væri allt sem bættist við í stærð- fræði áttunda bekkjar. Einn okkar þriggja sem, .stukkum’ ’ svona yfir áttunda bekk hafði enga einkunn undir 8 í prófirn- um og allir náðum við þeim og vel það. Úr því að svo til meðal- nemendur geta gert þetta hlýt- ur eitthvað að vera að þessu skólastigi, það virðist einfald- lega ekki vera nauðsynlegt. Ég hef aldrei orðið var við að hafa misst nokkuð úr við þetta framhjáhlaup. Að koma í níunda bekk var sáralítið stökk, nema hvað öll kennsla miðaðist við sam- ræmdu prófin. Það var hins vegar nokkurt stökk að koma í framhaldsskóla, þá fyrst var farið að gera einhverjar kröfur. Þótt þær væru ekki miklar til að byrja með dugðu þær til að fella um þriðjung nemenda á fýrsta ári. Fyrsta alvöru stökk- ið var að koma í annan bekk menntaskóla, þá fyrst var farið að gera einhverjar kröfur um heimavinnu og vinnu yfirleitt. Ef einhverjum hefur dottið í hug að gagnfræðaskóli, það er að segja sjöundi til níundi bekkur, sé of mikið miðaður við framhaldsskóla þá er það út í hött. Þvert á móti undirbýr gagnfræðaskóli nemendur þá sem stefna á framhaldsnám alls ekki nógu vel. Ég er á stærðfræðibraut og verð sér- staklega var við að ég er illa undirbúinn í stærðfræði, eðl- isfræði og efnafræði. í raun hefur kennsla í þessum fögum engin verið í grunnskóla og þá í mesta lagi eitthvert gutl. Þeir sem hafa stefnt á framhalds- nám á því sviði hafa þar af leið- andi sáralítinn undirbúning fengið. Ef það er nauðsynlegt að kenna öllum nemendum í gagnfræðaskóla það sama þá er betra að miða kennsluna við framhaldsskólana en ekki, af þeirri ástæðu að stærstur hluti nemenda fer í framhaldsskóla og þeir sem gera það ekki eru ekkert verr settir með þá menntun sem þeir fá heldur en án hennar. Niðurstaða mín er sú að grunnskólarnir gera of litlar kröfur, sérstaklega síðustu tveir til þrír bekkirnir. Það hlýtur að vera eitthvað að grunnskólakerfinu þegar að- eins um helmingur þeirra sem fara í framhaldsnám nær fyrsta árinu áfallalaust. Það þarf að losa grunnskólann við geymsluhlutverkið, þar er stefnuleysi stjórnvalda í menntamálum versti Þrándur í Götu. 5

x

Heimili og skóli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.