Heimili og skóli - 01.10.1987, Side 12
Er menntun ekki undirstaða
hvers þjóðfélags?
- Gefðu mér gott í skóinn -
Um þarfir unglings
og þátt skólans
Þarfir einstaklinga eru af
tvennum toga, þ.e. lífffæðileg-
ar, t.d. svefnþörf, kynferðis-
þörf o.s.frv. og félagslegar eða
áunnar hvatir, en undir þær
falla margar hvatir, sem orka
sterkt á atferli unglinga, svo
sem þörfin fyrir að blanda geði
við aðra og sjálfræðishvöt.
Þarfir af þessu tagi verða ekki
rannsakaðar beint og hlutlægt,
enda háðar tilgátum.
Athafnahvötina hafa kennar-
ar eða skólakerfin ærið oft
vanrækt. Það hefur löngum
verið litið svo á, að unglingar
sem lokið hafa skólaskyldu
séu reiðubúnir til að fella sjálfa
sig inn í venjubundið og fast-
mótað námskerfi, sem ekkert
tillit tekur til forvitnisvölunar
eða atferlis sem beinist að
virkri lausn á námsþrautum.
Nám er yfirleitt um of byggt á
köldum staðreyndum, sem
margar þarf að gleypa hráar,
en rannsókn, forvitni eða
áhugi á námsstarfinu sjálfu er
ekki byggður upp, heldur
þvert á móti, nemendur keyrð-
ir áfram með góðu eða illu og
til þess notaðar einkunnir (töl-
ur) fyrir einstök próf. Til þess
að virkja þessa sterku hvöt í
skólastarfinu þarf að skipu-
leggja nám þannig að umbun
eða svölun sé fólgin í hinu vits-
munalega starfi og nemendur
fái svör við þeim spurningum,
sem liggja þeim á hjarta eða
hugurinn stefnir til. Nemand-
inn þarf að eygja tiltölulega ná-
lægan tilgang með starfi sínu í
skóla, þetta má ekki vera
þrúgandi seta og þreytandi
áheyrsla.
12
Mikilvægustu félagslegu
hvatir ungdómsáranna eru:
1. Þörfin fyrir að komast í
snertingu við aðra.
2. Sjálfræðishvötin (að standa
á eigin fótum).
3. Frammistöðuhvötin (það að
láta sjást e-ð eftir sig).
Sú fyrsttalda þessara hvata
er fólgin í því að sækjast eftir
viðurkenningu, vera tekinn til
greina. Þetta er löngunin til að
afla sér viðgangs meðal full-
orðinna og einkum og sér í lagi
jafnaldra. Nú á einstaklingur-
inn að láta til sín taka, vera
ekki lengur bam, sem klappað
er á kollinn.
í skólastarfinu þarf að gefa
þessari hvöt mikinn gaum.
Kennari þarf helst að skapa
það andrúmsloft í skólastofu
(ef vel ætti að vera) að sérhver
einstaklingur finni til stöðu
sinnar í bekknum, því að um
leið og einhver er settur hjá
skapast vamarástand og
spenna hjá þeim er fyrir verð-
ur og vandamál gjósa upp.
Agavandamál verða vart til hjá