Heimili og skóli


Heimili og skóli - 01.10.1987, Side 6

Heimili og skóli - 01.10.1987, Side 6
Dagurinn og vegurinn - Karólína Stefánsdóttir - Sumri er tekið að halla og nú er sá tími þegar við njótum í hvað ríkustum mæli uppskeru móður jarðar. Tími þegar við skynjum betur en oft ella tengsl okkar við náttúruna og hið stórkostlega samspil lífs- ins. Við förum í berjamó, renn- um fyrir fisk, tökum upp grænmetið sem hefur vaxið í sumarylnum, tínum sveppi, grös og jurtir eða leggjum land undir fót með fjölskyldu og vinum og finnum hvað það er gott fyrir sálina að varpa af sér amstri hversdagsleikans og samiagast náttúninni, fara út úr básnum sem við höfum iát- ið kerfið marka okkur. Við íslendingar eigum því láni að fagna að búa í hreinu landi, umvafin stórbrotinni náttúru sem hefur á sér mörg andlit, viðkvæm, hlý, hörð, köld og stundum miskunnar- laus. Náttúru sem stöðugt kennir okkur að við verðum að taka tillit til hennar og minnir okkur á annað veifið, þegar hún fer hamförum, að hvað svo sem við reynum að telja okkur trú um, þá erum við tæpast herrar jarðar (eins og það að sjálfsögðu nefnist í karlaveldi nútímans) né erum heldur einhverjir hótelgestir hennar sem berum takmark- aða ábyrgð gerða okkar og get- um látið öðrum eftir að koma hlutunum í samt iag eftir okk- ur. En ná þessar raddir lífsins nógu vel til okkar? Hversu vef kunnum við íslendingar að meta þá náttúru sem við erum hluti af og ftnna samhljóm okkar við hana, - finna að við erum sjálf hluti af lífskeðiunni og hljótum að lúta sömu meginiögmálum? Hversu vet 6 kunnum við að meta ókkur sjálf og skynja og virða eigin þarfir og eigin ábyrgð? Öll viljum við búa í failegu umhverfi í sátt við okkur sjálf og aðra og lifa fífi sem veitir okkur fyllingu og vöxt. Og öll viljum við miðla því besta til bamanna okkar, tryggja þeim öryggi og sjá þau vaxa úr grasi heilbrigð og sífellt betur undir það búin að takast á við ábyrgð og vanda fullorðinsáranna. Ef við skyggnumst inn í þjóð- félag okkar og umhverfi og í eigin sálarskot, er auðvelt að sjá ýmis merki þess að okk- ur hefur einhversstaðar borið af leið og margt sem torveldar okkur að klóra í bakkann þótt við gemm mörg hver heiðar- lega tilraun til þess. Við þurf- um vafalítið að taka dýpra í ár- inni og vera betur samtaka. Þær raddir eru sífellt að verða sterkari víða um hinn vestræna heim og nú einnig hér heima að tengslaleysi okk- ar við náttúruna og um leið við ýmsa dýpri þætti í okkur sjálf- um hafi leitt okkur inn á hættulega braut misnotkunar og firringar. Vísindamenn em stöðugt að benda á að við séum á góðri leið með að raska jafn- vægi náttúrunnar með sívax- andi mengun og misnotkun á móður jörð. Hiiðstæða blasir hvarvetna við í manniífinu þ.e.a.s. í tengslum við hvert annað og okkur sjálf. Misnotkun og misrétti af ýmsu tagi er svo samofið ríkjandi viðhorfum, samofið menningu okkar og því þjóðféiagskerfi sem við bú- um við að við eigum oft erfitt með að koma auga á það, nema þá heist þegar það birtist í sinni svörtustu mynd svo sem í afvarlegri misnotkun vímu- efna eða iíkamsofbeldi. Sér- hæfing og samkeppni um fjár- muni, völd og frama eru lykil- orðin í menningu okkar, menningu sem setur efnisleg verðmæti langt ofar þeim and- legu. Okkur hættir því til að einblína á hinn ytri veruleika og bæla eða flýja andlegu þarf- ir okkar í velferðarkapphlaup- inu, flýja það sem í raun og veru skiptir okkur mestu máli. Með allri sérhæfingunni missum við auðveldlega sjónar af heildarsamhengi lífsins. Sjónarhornið nær aðeins yfir takmarkað svið veruleikans. Ýmsir hafa lýst því þannig að manneskjan í hinum vest- ræna heimi iifi í boxum og sjáí lítið út fyrir sitt eigið. Hún ótt- ist því eða tortryggi þau svið mannlegs fífs sem hún þekkir ekki og þetta skapi ýmsa erfið- ieika í samskiptum og sam- vinnu milli fólks, milli stétta og starfsgreina, kynja og kyn- þátta. Hin svokallaða frjálsa samkeppni gerir dæmið ekki auðveldara, hvorki fyrir okkur sjálf sem ábyrgar manneskjur né í tengslum okkar hvert við annað og náttúruna umhverfis okkur. Við þurfum stöðugt að standast kröfur samkeppninn- ar og lærum að meta okkur sjálf og aðra út frá gitdiim hennar.

x

Heimili og skóli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.